Tillaga Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð samþykkt
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun tillögu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra aðstjórnarfrumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn verður sá stærsti í Evrópu og munhafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum.Vatnajökulsþjóðgarður mun þekja um 15.000 km² sem samsvarar um15% af yfirborði Íslands ognær til lands sem varðar stjórnsýslu átta sveitarfélaga. Samkvæmt frumvarpinu mun þjóðgarðurinn í fyrstu ná til alls jökulsins og helstu áhrifasvæðahans, þ.m.t. Jökulsá á Fjöllum. Nákvæm mörk þjóðgarðsins munu þó ráðast endanlega afsamningum við landeigendur og handhafa nytjaréttar. Fyrir liggur að töluverður hluti af þvílandssvæði sem áhugavert er að falli innan Vatnajökulsþjóðgarðs vegna náttúrufars og tengingarvið Vatnajökul eru í einkaeign og verða ekki hluti þjóðgarðsins nema til komi samkomulag viðlandeigendur.
Fram hafa farið viðræður við landeigendur þess lands sem áhugavert er talið að verði hluti þjóðgarðsins og verður þeim viðræðum haldið áfram með það fyrir augum að ljúkasamningum jafnskjótt og lög um Vatnajökulsþjóðgarð verða að veruleika. Þess er vænst að hægtverði að stofna Vatnajökulsþjóðgarð seint á árinu 2007 eða snemma árs 2008.
Lagt er til í frumvarpinu að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs taki mið af alþjóðlegum viðmiðum umþjóðgarða og friðlýst svæði og að verndarstig einstakra svæða þjóðgarðsins miðist við aðhefðbundnar nytjar, svo sem beit og veiðar á fuglum, dýrum og vatnafiskum geti farið fram meðviðlíka hætti innan þjóðgarðsins og verið hefur.
Vatnajökulsþjóðgarður verður ríkisstofnun sem lýtur sérstakri sjö manna stjórn semumhverfisráðherra skipar. Þjóðgarðinum verður skipt í fjögur rekstrarsvæði undir stjórnþjóðgarðsvarða sem bera ábyrgð á daglegum rekstri svæðanna. Á hverju svæði verður starfandisérstakt svæðisráð skipað fulltrúum sveitarfélaga, ferðamálasamtaka og umhverfissamtaka.Verkefni svæðisráðanna verða m.a. að gera tillögu að verndaráætlun og rekstraráætlun fyrirviðkomandi svæði til stjórnar og vera þjóðgarðsverði til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins ásvæðinu. Fulltrúar heimamanna verða formenn svæðisráðanna og taka sömuleiðis sæti í stjórnþjóðgarðsins.
Net upplýsinga- og þjónustustaða verður byggt upp í þjóðgarðinum. Þjónustunetið mun byggjastá þremur einingum, þ.e. gestastofum sem verða meginstarfsstöðvar þjóðgarðsins, starfsstöðvumlandvarða og upplýsingastöðvum. Nú er gestastofa í Skaftafelli auk þess sem unnið er aðbyggingu gestastofu í Ásbyrgi stem stefnt er að opna vorið 2007. Lagt er til að fjórar nýjargestastofur verði reistar til viðbótar, þ.e. ein á hverju rekstrarsvæði þjóðgarðsins. Landvarsla innan marka þjóðgarðsins er nú á fjórum stöðum en lagt er til að staðirnir verði 11 við stofnunhans.
Áætlað er að uppbyggingin muni kosta 1.150 milljónir króna og er áætlað að sú uppbygging eigisér stað á fyrstu fimm árum eftir stofnun þjóðgarðsins. Þannig verði þjónustunet þjóðgarðsinsfullgert árið 2012. Fyrir liggur að fyrirtæki og félagasmtök eru tilbúin að leggja fram umtalsvertfjármagn til að styrkja uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs á fyrstu árum hans og er lagt til aðstofnuð verði sérstök Hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs sem taki við framlögum tilþjóðgarðsins.
Rögnvaldur Guðmundsson ferðamálafræðingur hefur lagt mat á áhrif þjóðgarðsins og þeirratillagna sem fyrir liggja um uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann telur að þjóðgarðurinn getifjölgað ferðamönnum til Íslands um 5-7% árið 2012, umfram það sem annars hefði verið, eða um30-42 þúsund manns og gistinóttum þeirra um 300-400 þúsund. Miðað við það er áætlað aðþjóðgarðurinn muni skila 3-4 milljörðum króna í viðbótar gjaldeyristekjur árið 2012 (á núvirði),70% af því vegna útgjalda ferðamanna innanlands en 30% vegna fargjalda. Árið 2020 telurRögnvaldur að Vatnajökulsþjóðgarður muni geta skilað a.m.k. 11 milljörðum í auknumgjaldeyristekjum af erlendum ferðamönnum. Líkur eru taldar á að tilkoma Vatnajökulsþjóðgarðsmuni auka atvinnu- og þjónustutekjur á nærsvæðum þjóðgarðsins um 1,5 milljarða króna ánúvirði á árinu 2012.Ætla má að árið 2005 hafi um 200 þúsund innlendir og erlendir ferðamenn komið á svæðið innanvæntanlegra marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Flestir komu í Skaftafell og að Jökulsárlóni en síðan að Dettifossi og Ásbyrgi.
Vandaður undirbúningur og pólitísk samstaðaUndirbúningur að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Vorið 1999samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu þar sem umhverfisráðherra var falið að kannamöguleika á stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Í kjölfarið skipaði umhverfisráðherra starfshópa ognefndir sem undirbjuggu stofnun þjóðgarðsins, þar á meðal nefnd sem í sátu fulltrúar þingflokkaá Alþingi, þau Arnbjörg Sveinsdóttir, Magnús Stefánsson, Steingrímur J. Sigfússon og ÖssurSkarphéðinsson. Sú nefnd skilaði ákliti vorið 2004. Það var síðan í ársbyrjun 2005 semríkisstjórnin samþykkti að fela umhverfisráðherra að vinna áfram að undirbúningi að stofnunVatnajökulsþjóðgarðs, m.a. á grundvelli tillagna frá þingmannanefndinni. Var honum falið aðvinna þennan undirbúning í nánu samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila og vinnaheildstæðar tillögur fyrir Vatnajökulsþjóðgarð sem taki til jökulhettunnar og aðliggjandijaðarsvæða, bæði norðan og sunnan Vatnajökuls.
Sigríður Anna Þórðardóttir, þáverandi umhverfisráðherra, skipaði nefnd sem í sátu fulltrúarsveitarfélaga sem fara með stjórnsýslu á svæði Vatnajökulsþjóðgarðs og fulltrúiumhverfisverndarsamtaka undir stjórn Magnúsar Jóhannessonar, ráðuneytisstjóraumhverfisráðuneytisins. Nefndin skilaði tillögum sínum til umhverfisráðherra í síðustu viku.
Á grundvelli þessa undirbúningsstarfs fer málið nú til umfjöllunar á Alþingi.





Skrifa athugasemd