Nóvember
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra (mynd www.norden.org)

10.11.2006 www.mbl.is

Vatnajökulsþjóðgarður metnaðarfyllsta verkefnið á sviði umhverfisverndar

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir stjórnarfrumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð vera metnaðarfyllsta verkefni sem íslensk stjórnvöld hafi lagt í á sviðu umhverfisverndar og landnýtingar. "Það sem er sérstakt við þennan þjóðgarð er auðvitað stærð hans og það að hann verður stofnaður með sérstökum lögum og stofnuð verður sérstök ríkisstofnun um rekstur hans," sagði hún í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. "Þetta er einnig atvinnuskapandi byggðamál þar sem áætlanir sýna að gera megi ráð fyrir 5-7% aukningu ferðamanna á svæðinu," sagði hún.

Jónína sagði, að með stofnun þjóðgarðsins væri verið að tryggja samvinnu stjórnvalda og íbúa á svæðinu varðandi framtíðarstjórn og rekstur þess. Um 20% þess lands, sem um ræðir, er í einkaeigu en Jónína segir samráð hafi verið haft við landeigendur í allri undirbúningsvinnu og að sú samvinna gefi ástæðu til bjartsýni um að samningar við þá muni takast. Ekki hafi hins vegar verið hægt að leiða samningaviðræður endanlega til lykta þar sem lög um þjóðgarðinn hafi ekki legið fyrir. Þegar það hafi verið gert verði hægt að ljúka slíkum viðræðum en að það muni þó líklega taka mislangan tíma eftir aðstæðum.

Spurð um það hvort lagafrumvarpið nú sé einhvers konar svar ríkisstjórnarinnar við þeirri umhverfisverndarumræðu sem átt hefur sér stað hér á landi á undanförnum mánuðum sagði Jónína sögu fyrirhugaðs þjóðgarðsins vera allt of langa til að hægt sé að tengja hana við umræðu undanfarinna mánaða. "Þetta mál hefur verið í undirbúningi árum saman og það var einfaldlega eðlilegur framgangur þess að leggja lagafrumvarpið fram nú. Vinna við undirbúning þess hefur gengið ötullega og því var einfaldlega tímabært að taka þetta skref." sagði hún.

frétt www.mbl.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica