Nóvember
Legóhópurinn
Legóhópurinn
Legóhópur 2006
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

08.11.2006 Nóvember

Legóhópurinn að leggja í hann

Lego hönnunarkeppnin verður haldin í annað sinn hér á landi þann 11. nóvember. Hafnarskóli sendir lið líkt og í fyrra og er hópurinn samansettur af 10 nemendum í 7. bekk. Það eru Guðjón Ingibergur, Aron Birkir, Sólveig Valgerður, Anna Mekkín, Anna Sigurðar, Kolbrún Birna Karen Björg, Kristey Lilja, Þórhildur og Karen Þórelfur sem skipa hópinn í ár en Eiríkur Hansson er liðstjóri. Lið Hafnarskóla heitir Nanónördar enda snýst keppnin í ár um Nanótæknina. Keppnin felst í því að liðið þarf að byggja og forrita róbóta sem þarf síðan að leysa níu þrautir á þrautabraut og þarf það að gerast á tveimur og hálfri mínútu. Einnig þarf liðið að skila rannsóknarverkefni um nanótæknina, halda dagbók og svo er hópurinn hvattur til að hafa skemmtiatriði á sviði í keppninni.

Nú er hópurinn á lokaspretti undirbúnings og í dag verður foreldrasýning hjá hópnum kl. 17:00 og kl. 19:00 keppa lið Hafnar- og Heppuskóla.
Keppnin í ár er haldin í Öskjunni, nýja náttúrufræðihúsi Háskólans.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á heimasíu hennar http://www.firstlego.is/.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica