Nóvember
Jól í skókassa
Jól í skókassa
Jól í skókassa
Mynd 8 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

07.11.2006 Nóvember

Jól í skókassa

Börnin í 2.bekk Nesjaskóla mættu í skólastofu sína eftir skólatíma sl. miðvikudag með allskonar smádót, jólapappír, kassa og bönd og með þeim voru mömmur og pabbar til að hjálpa þeim við að pakka inn jólagjöfum til barna í Úkraínu. Með þessu framtaki eru þau að taka þátt í verkefninu ,,Jól í skókassa´´ sem KFUM og KFUK hefur staðið fyrir frá því fyrir jólin 2004. Um 40 börn eru í bekknum og mættu flest og greinilegt var að jólastemning ríkti í stofunni og ekkert síður hjá foreldrunum. En hvað eru jól í skókassa? Verkefnið jól í skókassa felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti, eins og ritföng, vettlinga, sokka, hreinlætisvörur, leikföng og sælgæti í skókassa. Kassanum er síðan pakkað inn í jólapappír og útdeilt til þurfandi barna víðsvegar í heiminum og að þessu sinni eru það börn í Úkraníu sem fá jólapakka frá börnum á Íslandi.

Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM og KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt síðan áfram að spyrjast út og fyrir síðustu jól söfnuðust yfir 2600 skókassar, eða rúmlega fimmfalt fleiri en árið á undan! Það hefur því verið ákveðið að endurtaka verkefnið að nýju fyrir komandi jól.

Tillaga að gjöfum í skókassana.

Í bæklingi frá KFUM og KFUK er bent á ýmsa hluti sem sem tilvalið er að setja í kassana

Leikföng: Litlir bílar, boltar, dúkkur, bangsar, jó-jó, dót sem blikkar eða gefur frá sér hljóð (muna að láta aukarafhlöður fylgja) o.s.frv.
Skóladót: Pennar, blýantar, yddari, trélitir, tússlitir, stimplar, litabækur, skrifbækur eða pappír, vasareiknir sem gengur fyrir sólarorku o.s.frv.
Hreinlætisvörur: Tannbursti, tannkrem, sápustykki, greiða, þvottapoki o.s.frv.
Annað: Sælgæti (t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, karamellur) sólgleraugu, vasaljós (muna að láta aukarafhlöður fylgja), derhúfur, sokkar, stuttermabolir, vettlingar, hárspennur, úr, litlar myndabækur o.s.frv.
Athugið! Æskilegt er að hafa a.m.k. einn hlut úr hverjum flokki. Einnig kemur þar fram hvað ekki má senda.

Eftirtaldir hlutir mega alls ekki fara í skókassann:
Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
Stríðsdót: Leikfangabyssur, leikfangahermenn, hnífar o.s.frv.
Matvara: t.d. matur sem rennur út, niðursoðinn matur, harðfiskur, kex o.s.frv.
Vökvar: Sjampó, krem, sápukúlur o.s.frv.
Lyf: Vítamín, hálsbrjótsykur, smyrsl o.s.frv.
Brothættir hlutir: Speglar, postulínsdúkkur o.s.frv.
Spilastokkar: Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassa.

Þetta verkefni er ekki bara fyrir börnin, það geta allir tekið þátt í því og komið pökkunum í afgreiðslu Flytjanda sem sér um að koma þeim endurgjaldslaust til KFUM og KFUK í síðasta lagi 8.nóv. Muna þarf að setja 3-500 kr í umslag efst í kassann til að greiða sendingarkosnaður til Ukraníu.

Þá getur sendandinn sett sett mynd af sér ásamt nafni og heimilisfangi og/eða netfangi efst í skókassann. Það gefur viðtakanda möguleika á að setja sig í samband við sendanda pakkans og . Þannig geta myndast vinatengsl sem varað geta lengi.

Nánari upplýsingar er að finna á www.skokassar.net

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica