Kennarar við grunnskóla Hornafjarðar senda frá sér ályktun
Kennarar við grunnskóla Hornafjarðar hafa sent frá sér ályktun til Launanefndar sveitarfélaga, bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar, formanns skólanefndar Sveitarfélagsins Hornafjarðar og samninganefndar FG. Í ályktuninni segir ? Kennarar við grunnskólana á Hornafirði vilja vekja athygli á stöðu kjaramála kennara. Í gildandi kjarasamningi, í grein 16.1, segir m.a.: Aðilar skulu taka upp viðræður fyrir 1. september 2006 og meta hvort breytingar á skólakerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða og ákveða þær ráðstafanir sem þeir verða sammála um.
Í ljósi verðbólguþróunar og þeirra leiðréttinga sem gerðar hafa verið hjá öðrum hópum í samfélaginu þykir okkur full ástæða til að leiðrétta laun kennara til jafns við aðra.
- Kennarar við grunnskóla Hornafjarðar.





Skrifa athugasemd