Fyrsta síldarlöndun Krosseyjar SF-20
Krossey SF-20 landaði fyrsta síldarfarmi sínum hjá Skinney Þinganesi í dag 190 tonnum af frystum síldarflökum. Öll síld sem veidd er á Krossey er unnin og fryst um borð. Tvö önnur skip Skinneyjar Þinganess, Áskell og Jóna Eðvalds eru á síldveiðum og hefur veiði gengið vel. Samkvæmt upplýsingum á Hafnarvoginni er búið að landa sama magni af síld og í fyrra miðað við 1.sept.til 31.okt. 7000 tonnum en munurinn er sá að núna eru tvö skip, Áskell og Jóna Eðvalds, með sama magn og var af þrem skipum í fyrra.
Veiði er góð hjá þeim fimm línubátum sem eru á sjó eins hjá netabátum. Aðeins tveir af smábátunum eru á sjó í dag.
Lokað var fyrir humarveiði 30.sept. og ekki opnað aftur fyrr en 15.mars.





Skrifa athugasemd