Ríki Vatnajökuls - Október
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Betur fór en á horfðist
      <description>Betur fór en á horfðist þegar Slökkvilið Hornafjarðar fékk útkall sl. laugardag um eld í olíutanka á hafnarsvæðinu, þegar eldurinn reyndist vera í gömlum olíutanka sem verið var að rífa. Tankarnir tveir sem Hringrás var að rífa niður og fjarlægja voru fyrir löngu úr notkun en smá olíulögg var í öðrum þeirra og komst neisti úr skurðartækjunum í olíuna svo af varð nokkurt bál og var slökkviliðið kallað á staðinn. Það gekk fljótt og vel að slökkva í tankanum með léttvatni, sagði Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, og Hringrásarmenn gátu  svo haldið áfram að brytja tankana niður og fjarlægja.</description>
Félag Slökkviliðsstjóra hélt sinn árlega aðalfund í Nýheimum
      <description>Félag Slökkviliðsstjóra á Íslandi hélt sinn árlega aðalfund í Nýheimum á Höfn um sl. helgi. Efst á baugi hjá slökkviliðum landsins þessa dagana eru eiturefnamál segir Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu sem er formaður  félagsins. Brunamálastofnun hefur fengið 100 mkr. frá ríkinu til kaupa á búnaði sem útdeilt verður til slökkviliðanna í landinu. Umhverfismál eru okkar hlutverk núna ,segir Kristján, og þar eigum við að sjá um eiturefnamálin, við eigum að hreinsa upp eftir eiturefnaslys og passa uppá að líf fólks verði ekki í hættu. Verið er að kaupa kerrur með eiturefnabúnaði ásamt fleiri tækjum og tólum sem dreift verður á slökkviliðin. Þetta er þyrlutækur búnaður sem fluttur verður milli staða eftir þörfum. Slökkviliðin munu skiptast á með að æfa sig í notkun á þessum búnaði sem síðan verður skipt niður á fjórðunga landsins og ekki er ólíklegt að eitthvað af þessu verði staðsett hjá Slökkviliði Hornafjarðar þar sem þetta svæði er sérhæft og langt til annarra staða.</description>
Fyrirgefiði, getið þið sagt mér hvar Öræfajökull er?
      <description>Dagarnir 12. og 13. október síðastliðnir voru merkisdagur í Suðursveit.  Þá  var efnt til málþings um Þórberg Þórðarson, verk hans og ævi. Tilefnið var vígsla  Þórbergsseturs sem átti sér stað í júlí 2006. Margt var um manninn enda spennandi dagskrá frá ýmsum spekingum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa ást á skáldinu og manninum Þórbergi. Þar var líka mætt Helga Jóna Ásbjarnardóttir (Lilla Hegga) aðalpersónan úr Sálminum um blómið en hún færði Þórbergssetri að gjöf  skóburstasett Þórbergs þannig að enn bætast við sýningargripir úr eigu skáldsins. Þingið hófst á setningu Þorbjargar Arnórsdóttur sem bauð alla velkomna og kynnti síðan erindi og fyrirlesara eftir því sem við átti.</description>
Segir enga glóru í því að Skaparinn láta sig lifa svona lengi
      <description>Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli í Öræfum, sem náð hefur því meti að verða elst allra Íslendinga 109 ára og rúmum tveim mánuðum betur, lætur þetta met engin áhrif á sig hafa og heldur sinni einstöku rósemi. Henni finnst starfsfólk hjúkrunarheimilisins hugsa allt of vel um sig og dekra við sig og segir því það óspart. Eins segir hún að það sé engin  glóra í því hjá Skaparanum að láta sig lifa svona lengi. Fyrir níu árum heimsótti fréttamaður vefsins Sólveigu á hjúkrunarheimilið þar sem hún hafði þá verið í fjögur ár og bað hana að segja sér eitthvað frá sinni löngu æfi. Það var ekkert sjálfsagðara  ef einhver hefði gaman af og í tilefni af þessu aldursmeti Sólveigar birtist þetta viðtal hér til að gefa lesendum vefsins innsýn í æfi þessarar duglegu og merku konu.</description>
Hefur sviðið hausa í nær aldarfjórðung
      <description>Það fer að styttast í aldarfjórðung frá því Þrúðmar Sigurðsson bóndi í Hoffelli tók að sér að svíða hausa fyrir sláturhúsið á Höfn og er ekki að heyra á honum að hann hafi hug á að breyta til,  hann er ekkert á því að hætta að vinna þó hann verði 80 ára á næsta ári, segist ekki sjá fyrir endann á því. Þrúðmar svíður um 60 hausa á klukkutíma og hefur frá byrjun notað gas og súr til að svíða með en áður var eingöngu  notað gas. Það eru því orðnir margir hausarnir sem Þrúðmar hefur sviðið á þessum árum en flestir voru þeir árið 2004, rúm 30 þúsund. Undanfarin ár hefur ekki fengist að kaupa ósviðna hausa og sama regla gildir fyrir bændur og er ástæðan fyrir því strangar reglur til varnar riðuveikismiti. Þessar reglur ná ekki til afurða af nautgripum.</description>
Good Morning America í útsendingu frá Jökulsárlóni
      <description>Einni vinsælasti morgunþáttur Amerísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC mun senda út frá Jökulsárlóni og verður útsendingin um miðjan nóvember frá lóninu. Að sögn Einar Björns Einarssonar staðarhaldara á Jökulsárlóni þá var haft samband við hann s.l. mánudag vegna útsendingarinnar og í framhaldi af því staðfest að útsendingin yrði um miðjan nóvember. Um er að ræða innslag í þáttinn frá Lóninu. Útsending sem þessi er án efa mjög góð kynning fyrir ferðaþjónustuna hér í Ríki Vatnajökuls. Fram kemur á fréttavefnum Vísi að útsendingin frá Íslandi verður liður í vikulöngu ferðalagi þáttarins, en hann mun verða sendur út frá sex öðrum löndum í sömu viku. Á Íslandi ætla þáttastjórnendur að fjalla um gróðurhúsaáhrifin og hnattræna hitun. 
|nl|</description>
Keppa í annað sinn í First Lego League keppninni
      <description>Í ár ætla Heppuskóli og Hafnarskóli að keppa í annað sinn í First Lego League keppninni. Í keppninni eru krakkar á aldrinum 10 – 16 ára keppa og eru 6 – 10 keppendur í hverju liði.  
|nl|Markiðið með keppninni er að vekja áhuga grunnskólanemenda á vísindum og tækni ásamt því að byggja upp sjálfstraust þeirra og leiðtogahæfni. LEGO–hönnunarkeppnin eða First Lego League er alþjóðleg keppni sem samanstendur af þraut þar sem keppendur smíða vélmenni og forrita það til að vinna verkefni í sambandi við þemað, sem í ár er Nanótækni, og gera skemmtiatriði.  Einnig er kominn nýr liður í keppnina, dagbók sem á síðan að sýna dómnefnd. Nanótækni eru rannsóknir sem fara fram á nanóskala sem er 100.000 X minni en breidd á mannshári, Eins og þið sjáið er þetta ekki auðvelt verkefni og þá er gott að hafa leiðbeinendur en það eru, Guðlaug Úlfarsdóttir, í Heppuskóla og  Eiríkur Már Hansson, í Hafnarskóla.</description>
Starfsemi hafin hjá Fiskistofu á Höfn
      <description>Starfsmenn nýs útibús Fiskistofu á Höfn eru komnir til starfa þó ekki hafi formleg opnun útibúsins farið fram ennþá. Við erum að koma þessu á stað hér og skipuleggja þetta allt segir Sævar Guðmundsson sem er útibústjóri Fiskistofu á Höfn, við byrjuðum að vinna hér fyrsta þessa mánaðar og höfum við komið okkur fyrir í Garðeyjarhúsinu til að byrja með eða þar til ákvörðun um framtíðarhúsnæði hefur verið ákveðin. Með Sævari eru veiðieftirlitsmennirnir Þorbergur Torfason og Ólafur Vilhjálmsson sem skipta með sér störfum á sjó og landi við eftirlit um borð í skipum og í fiskvinnslum á svæðinu frá Hornafirði til Borgarfjarðar eystri. Sævar segir að næg verkefni verði fyrir þá félaga og það sem starfið gengur út á er m.a. að fylgjast með að lögleg veiðarfæri séu notuð og á það við í öllum þessum sameiginlegu fiskistofnum, að rétt sé vigtað, farið sé rétt að í sambandi við undirmálsreglur og ekki sé verið að veiða of smáan fisk og eins að ekki sé  brottkast á fiski.</description>
Dreki fenginn til að koma nemendum í samræmt próf vegna veðurs
      <description>Mjög hvasst er í Öræfum í dag, nálægt 50 m/sek í mestu hviðum. Skólanum í Hofgarði var aflýst en þar sem 2 nemendur þurftu að komast í samræmt próf var bryndreki slysavarnafélagsins fenginn til að koma þeim á milli svo að allt gekk eftir áætlun með prófið. Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri segir að heldur sé farið lægja en mjög hvasst sé samt ennþá. Hún segir að eitthvað hafi verið um bílaumferð í Öræfum í dag og veit ekki til að óhöpp hafi orðið þó ekki sé hægt að segja að sé ferðaveður. Þetta er í annað sinn sem kennsla fellur niður í haust vegna hvassviðris því við tökum enga áhættu með að fara með börnin á milli þegar ekki telst ferðaveður.</description>
Hvernig er veðrið?
      <description>Síðastliðin 14 ár hafa veðurlýsingar  komið frá Akurnesi en nýlega varð þar breyting á og nú kemur veðrið frá Höfn. Skýringin á þessu er sú að nýr veðurathugunarmaður, Nanna Dóra Ragnarsdóttir, hefur tekið við veðurathugunum og  mælingaræki Veðurstofu sett upp í garðinum heima hjá henni á Smárabrautinni. Nanna Dóra er enginn nýliði í þessu starfi en hún er dóttir Ingunnar Jónsdóttur í Akurnesi sem hefur verið veðurathugunarmaður í Hornafirði í tæp 14 ár og var  Nanna Dóra  í foreldrahúsum þegar veðurathugunarstöðin fluttist þangað og tók  þátt í starfinu meðan hún var heima og hefur verið til taks þegar foreldrarnir hafa þurft á að halda. Veðurathuganir eru mjög bindandi starf því gera þarf athuganir og mælingar á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn sama hvort er á helgum dögum eða virkum. Stærsta mælingin er kl. 9 og 18 en á öðrum tímum er mælt hitastig, metinn vindhraði,vindátt, skýjahæð, skýjamagn, skyggni, og skýjategundir og svo hvernig veðrið er. Þetta er gert við hverja athugun og lesið af loftvoginni.</description>
Skinney fékk troll í skrúfuna
      <description>Erlingur SF 65 dró í morgun fiskiskipið Skinney til Hornafjarðar  eftir að skipið hafði fengið fiskitrollið í skrúfuna þar sem það var að veiðum í Lónsbugt. Björn Lóðs fór á móti skipunum út fyrir ós og fylgdi skipunum inn á höfnina. Skinney Þinganes hefur selt veiðiskipið Ásgrím Halldórsson til Írlands. Björg Jónsdóttir ÞH-321 sem Skinney Þinganes keypti í sumar er komin til síldveiða og hefur hlotið nafnið Krossey SF-20. Góð síldveiði hefur verið og samkvæmt tölum frá Hafnarvoginni eru komin 3700 tonn á land frá 1.sept.</description>
Þekkingarnetið býður upp á fjölvirkjanám í ferðaþjónustu
      <description>Þekkingarnet Austurlands býður upp á nám fyrir starfsfólk í þjónustugreinum með áherslu á ferðaþjónustu í samstarfi við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu og Markaðsstofu Austurlands. Að sögn Ragnhildar Jónsdóttur verkefnisstjóra og ráðgjafa Þekkingarnetsins þá er Fjölvirkjanámið í Ferðaþjónustu, sem er heiti námsins ætlað lykilstarfsmönnum í ferðaþjónustufyrirtækjum, 20 ára og eldri með stutta formlega skólagöngu að baki. Með lykilstarfsfólki er m.a. átt við starfsfólk í afgreiðslu, eldhúsi, ræstingum, bílstjóra og rekstraraðila  í fámennum ferðaþjónustufyrirtækjum. Námið er 170 kennslustundir þar af 38 kennslustundir í verkefnavinnu. Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum frá kl.14–17, á þeim stöðum þar sem nægjanlega stórir námshópar myndast. Auk þess verða 3–4 námslotur þar sem allir þátttakendur í náminu koma saman ásamt leiðbeinendum. Stefnt er að því að námið hefjist fyrri partinn í nóvember 2006 og ljúki í apríl 2007.</description>
Nemendur á náttúrufræðibraut heimsækja Mývatn
      <description>Fimmtudaginn 12. október síðast liðinn héldu 12 nemendur úr FAS áleiðis til Egilsstaða. Þetta voru að stærstum hluta nemendur á náttúrufræðibraut sem eru um það bil hálfnaðir í sínu námi eða lengra komnir. Einnig voru skiptinemarnir Fah frá Tælandi og Konstanze frá Austurríki með í för. Á Egilsstöðum sameinaðist hópurinn rúmlega 30 krökkum frá ME. Einnig voru þrír kennarar með í för. Haldið var rakleiðis í Kröflu og byrjað á því að skoða virkjunina. Sá sem tók á móti hópnum þar var Garðar Héðinsson sem er búsettur á Hornafirði en sækir vinnu í Kröfluvirkjun. Eftir að hafa kynnt sé virkjunina var haldið að Leirhnjúk þar sem gaus talsvert í Kröflueldum og labbað þar. Þar er að finna hraun á mismunandi aldri og því auðvelt að sjá hvernig gróðurinn nemur land og klæðir það smám saman.</description>
Rjúpnaveiði hafin
      <description>Rjúpnaveiðitímabilið tók gildi í gær og fóru nokkrir áhugasamir veiðimenn á hefðbundnar veiðislóðir í Lóni svona rétt til að kanna aðstæður að sögn eins  þeirra. Veður var ekki ákjósanlegt til veiða, þoka og súld víða  og sagði viðmælandi vefsins að ekki hefði verið nokkur rjúpa sjáanleg þar sem hann fór um. Ekki má fara til veiða mánudaga, þriðjudag og miðvikudaga og líkur veiðitímabilinu 30.nóv.</description>
Hvar er Skeiðará og hvert ætlar hún ?
      <description>Allt bendir til þess að ráðast þurfi í miklar framkvæmdir fyrir vestan Skeiðará á næstu mánuðum ef ekki á að skapast vandamál á þjóðvegi 1 við Skeiðarárbrú segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Með hopun jökla hefur farvegur Skeiðarár breyst og nú er allur straumur árinnar vestar en lengi hefur verið og ég tel að reisa þurfi háan varnargarð fyrir vestan Skeiðará til að stýra ánni undir brúna, varnargarð sem þarf líklega að vera 3-4 km á lengd. Varnargarðurinn sem er austan árinnar hefur dugað ágætlega  undanfarin 30 ár. Á Málþingi sem haldið var á Hótel Skaftafelli 7.okt.sl. í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá stóra Skeiðarárhlaupinu voru flutt fróðleg erindi um þær rannsóknir sem farið hafa fram  á hlaupinu og afleiðingum þess. Ragnar segir fyrirlesarana þrjá þá Magnús Tuma Guðmundsson, Helga Jóhannesson og Odd Sigurðsson hafa verið frábæra, Magnús Tumi flutti fróðlegt erindi um Grímsvötn en þar hafa vísindamenn safnað geysilega miklum upplýsingum eftir Grímsvatnagosið sem eru mikilvægar í sambandi við Kötlu og gos í Grímsvötnum í framtíðinni.</description>
Kröftugt þrumuveður veldur miklu tjóni
      <description>Kröftugt þrumuveður gekk yfir Höfn og nágrenni í gærkvöldi og olli miklu tjóni á flestum bæjum í Nesjum vestan Hafnar. Að sögn Hjartar Hjartarsonar hjá Símanum voru um hádegi í dag komnar tilkynningar frá 12 bæjum um tjón á tölvum, símkerfum og eitthvað hafði eyðilagst af sjónvörpum einnig datt sjálfvirka sambandið á Hvanneyjarvita út. Hjörtur sagði að í flest öllum tilfellum hefðu þessar tilkynningar komið frá þeim sem eru með ISND tengingu og að sá öryggisbúnaður sem þar á að varna spennusveiflum hefði ekki dugað til varnar eldingunum.  Jóhanna Gísladóttir í Stórulág  segir þetta eitt mesta þrumuveður sem hún man eftir og það var svo kröftugt að hlutir í hillu titruðu. Þrumuveður virka illa á skepnur einkum hesta og sagði Jóhanna hest hjá þeim hafa fælst og þotið upp á veg en hann náðist fljótlega og var komið í hús. Í Stórulág eyðilagðist sjónvarp, tölva og sími.</description>
Leikdagskráin Brot úr sögu banka í útibúi Landsbankans á mánudag
      <description>Hátíðarstemmning hringinn í kringum landið er titill á ferð Farandleikhúss Landsbankans þar sem þeir fagna áfram 120 ára afmæli bankans með því að halda hátíð í útibúum Landsbankans, hringinn í kringum landið. Farandleikhúsið sýnir "Brot úr sögu banka" sem er leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er saga Landsbankans, árin 1886-2006, í tónum og tali. Handritshöfundur er Felix Bergsson og í leikstjórn Vals Freys Einarssonar. Leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Jakob Þór Einarsson og Kristjana Skúladóttir. Valdimar Kristjónsson stjórnar lifandi tónlist. Verkið verður frumsýnt í Apalbankanum Reykjavík og í útibúi Landsbankans á Akureyri miðvikudaginn 11. október. Farandleikhúsið verkið mun verðs sýnt hér á Höfn í útibúi Landsbankans mánudaginn 16. okt. frá kl. 11:30 til 13.30.</description>
Leikskólarnir fá gönguvesti að gjöf frá Skinney/Þinganesi
      <description>Þegar leikskólarnir Lönguhólar og Krakkakot opnuðu aftur eftir sumarfrí barst þeim sending frá Skinney/Þinganes og var innihald hennar gönguvesti fyrir öll börn í leikskólunum. Vilja starfsfólk og börn Lönguhóla og Krakkakots senda fyrirtækinu og eigendum þess bestu þakkir fyrir. Þetta gerir það að verkum að öllum börnum er unnt að fara í gönguferð í vestum á sama tíma og hefur það ekki verið hægt áður. Hlutverk vesta af þessu tagi er að börnin sjáist betur í umferðinni og ef þau taka sig út úr hópnum er auðvelt fyrir starfsfólk að þekkja þau frá öðrum börnum.</description>
Mikið framundan í Heppuskóla
      <description>Heppuskóli hefur nú gefið út nýtt fréttabréf. Þar kemur m.a. fram að  nemendur skólans áttu þess kost að velja sér söng sem valgrein. Nokkur hópur nemenda valdi sönginn og hófust æfingar í haust. Stjórnandi er Sigurður Páll Árnason. Fyrirhugað er að þessi kór syngi við ýmis tækifæri á vegum skólans. Eins og verið hefur er starfandi lítil heimavist við skólann. Sú breyting hefur orðið að heimavistin er í vetur á Höfn. Samið var við Halldór Sævar Birgisson um að sjá um vistina og er hún til húsa að Bogaslóð 6 (Sólhóll). Nemendur í heimavistinni eru 3.  Eins og í fyrra var samið við Kaffi Hornið um mat fyrir nemendur skólans. Helstu breytingar frá síðasta ári eru að hvert tímabil er 4 vikur, nemendur fá ávexti í eftirrétt og hægt er að fá aukaskammt (ábót) sem kostar kr. 300.-. Í september voru nær sjötíu nemendur í mat.</description>
Frjálst er í fjallasal
      <description>Laugardaginn 16. sept. s.l. fór Ferðafélagið í haustlitaferð í Bæjarstaðarskóg sem var jafnframt síðasta ferð sumarsins. Veðrið lék við okkur þó svo að veðurspá dagsins segði annað, logn var, heiðskýrt og um 20 stiga hiti. Alls mættu 16 manns í þessa ferð.Tók Ragnar Frank á móti okkur í Skaftafelli og fylgdi okkur inn fyrir Morsá en vegna anna gat hann ekki verið með okkur allan daginn. Á leiðinni vestur eftir sagði hann okkur frá því helsta sem fyrir augum bar og skemmtilegar sögur sem tengjast þjóðgarðinum  m.a. að þar væru til sölu nafnlausir tindar fyrir ásættanlegt verð. En þjóðgarðurinn á t.d. Ragnarstind, Kristínartinda og Þórunnartind. Er inn á sand kom kvöddum við Ragnar og héldum sem leið lá inn í Bæjarstaðarskóg og þaðan vestur að Réttargili. Þar fékk ungdómurinn að vaða og leika sér um stund í tæru bergvatninu, einnig sáust sumir þeir eldri lauma sér úr skóm og sokkum og vaða með krökkunum um lækinn og skríða svo upp á bakkann og láta sólina þurrka sér, aðrir létu sér nægja að rölta um og skoða gróðurinn eða tína ber.</description>
Frumsýna American graffiti 14. október
      <description>Laugardaginn 14. október n.k. mun Hornfirska skemmtifélagið í fimmta sinn frumsýna  glæsilega tónlistardagskrá á Hótel Höfn. Að þessu sinni verður rifjað upp gömlu góðu árin þegar rokkið var að slíta barnsskónum og flytja lög á borð við At the hoop, Locomotion,  That´ll be the day, Be bob a lula , Runaway , Peppermint twist, Chappel of love, Walk the Line, C´mon everybody , Lollipop og In his kiss. Í tengslum við sýninguna bíður Hótel Höfn upp á 3ja rétta kvöldverð og dansleik með hljómsveitinni KUSK. Matseðillinn verður, í forrétt amerísk kjúklingaveisla með teriyaki, í aðalrétt, lambapiparsteik með gulrótarflani, steiktum maís og buffalósósu, í eftirrétt verður milk shake “American graffiti”.</description>
Málþing í Skaftafelli. 10 ár frá Skeiðarárhlaupi
      <description>Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá Skeiðarárhlaupinu 1996 verður haldið málþing á Hótel Skaftafelli laugardaginn 7. október n.k. Ákveðið er að minnast þessara miklu náttúruhamfara með hressilegri og skemmtilegri samverustund á Hótel Skaftafelli í Freysnesi. Rifjað verður  upp ýmislegt sem uppá kom þann tíma sem hlaupið stóð, tímann þar sem fólkið í Freysnesi og aðrir Öræfingar lögðu ómælda vinnu í að taka á móti þeim fjölda fólks sem þar var meðan mest gekk á og eins þegar ráðist var í að koma vegarsambandi á yfir sandinn.  Ragnar Frank þjóðgarðsvörður verður með skoðunarferð að útfalli Skeiðará. Ég ætla að bjóða upp á skoðunarferð upp að nýja útfallinu við Skeiðará síðan í hlaupinu 1996 sagði Ragnar, þá kom mikil spýja út svolítið vestar en gamla útfallið er og braut þar ísinn frá og ísspöngin fór af stað niður farveginn,  þar var aðalrásin þegar útfallið tók ekki við meiru og sprengdi hún jökulinn þar. Þetta er það sem við ætlum að skoða í þessari ferð. Hægt er að komast þessa leið á bílum.</description>
Flugfélagið Ernir tekur við flugi á Hornafjörð
      <description>Frá og með næstu áramótum mun Flugfélagið Ernir taka við áætlunarflugi til Hornafjarðar. Flogið verður 7 til 9 sinnum í viku en áætlað er að félagið kaupi 19 sæta Jetstream flugvél sem búin er jafnþrýstibúnaði. Í sumar fór fram ríkisútboð þar sem Landsflug, Flugfélag Íslands, Flugfélag Vestmannaeyja og Ernir buðu í flugleiðirnar Hornafjörð, Bíldudal, Gjögur, Sauðárkróks og var Flugfélagið Ernir valið til að sinna áætlun eftir að áreiðanleikakönnun hafði farið fram. Hjá flugfélaginu Erni sem er rótgróið 40 ára gamalt flugfélag vinna um 10 manns og mun þeim fara fjölgandi með þessum verkefnum. Að sögn Harðar Guðmundssonar framkvæmdarstjóra og eiganda flugfélagsins þá verður afgreiðslan á flugleiðinni á Hornafjarðarflugvelli og Reykjavíkurflugvelli með sama hætti og áður, flug verður hægt að bóka í gegnum bókunarkerfi á flugfelag.is.</description>
Búið að opna afurðasölu Norðlenska á Höfn
      <description>Þá er kominn tími á að drífa sig í sláturgerðina og kaupa kjöt í frystikistuna. Búið er að opna afurðasöluna í Sláturhúsi Norðlenska á Höfn og er hún sem áður í umsjá Unnar Guðmundsdóttur. Verð á heilum slátrum er 758 kr. og fylgja fjórir keppir (gervikeppir) með. Þeir sem vilja fá glænýtt kinda- eða lambakjöt geta fengið heila skrokka á 809 kr. kg.af lambakjöti og ærkjötið á 399 kr. og kjötið er síðan sagað eftir óskum kaupanda. Þindar kosta 222 kr.kg. lifur 255 kr. hjörtu 201 kr. eystu 445 kr. blóð 1 líter 83 kr. hausar 454 kr. mör 79 kr. gervikeppir eru á kr. 66 stk.</description>
Og nú er ég kominn heim
      <description>Rannsóknarstofa Fiskiðnaðarins opnaði útibú í Nýheimum á Höfn 1. september sl. og er umsjónarmaður þess Guðmundur Heiðar Gunnarsson. Guðmundur er Hornfirðingur og því öllum hnútum kunnugur á sínu heimasvæði. Ég er mjög ánægður með að vera kominn heim aftur og fá vinnu í mínu fagi segir Guðmundur. Síðan ég fór héðan hef ég lengst af verið í Reykjavík, fór þar í nám í lífefnafræði til að byrja með og síðar fór ég í doktorsnám í læknadeild í Háskólanum í sameindar erfðarfræði þ. e. Líftækni. Samhliða því var ég framkvæmdastjóri við lítið fyrirtæki sem ég stofnaði og heitir Lífeind, sérhæft í að selja ákveðinn tæknibúnað.</description>
      <alt>Guðmundur Heiðar Gunnarsson</alt>
Ánægjulega afmælisferð til Reykjavíkur
      <description>Í sjónvarpsþættinum "Afsakið meðan við afmælum" sem var tileinkaður sögu sjónvarpsins í tilefni af 40 ára afmæli þess kom fram að þegar sjónvarpið fór í loftið mættu sjónvarpsmenn á fæðingardeild Landsspítalans til að afhenda kornabarni sem fæddist þann sama dag ,  á þeirri stundu er útsending hófst, sjónvarpstæki að gjöf. Þetta barn var Guðlaug Úlfarsdóttir kennari við Heppuskóla og var hún mætt í þáttinn til að rifja upp þennan atburð. Aðspurð hvort hún myndi eftir því að vera kölluð sjónvarpsbarnið og hvort það hafi verið partur af hennar lífi sagði hún að það hefðu helst verið eldri konur sem höfðu kallað hana það fram eftir aldri. Í þeim töluðu orðum í þættinum, þá var stórt breiðvarpstæki látið síga niður og var Guðlaugu tilkynnt að tækið væri gjöf til hennar á þessu tímamótum og væri tækið í lit, lét Þórhallur Gunnarsson það fylgja með í gríni að það væri aðeins hægt að horfa á ríkissjónvarpið í tækinu.</description>
Þórhallur Dan hefði orðið 80 ára á 40 ára afmæli Hótels Hafnar
      <description>Í dag 1.október er haldið upp á 40 ára afmæli Hótels Hafnar og er gestum og gangandi boðið í afmæliskaffi frá kl. 14 til 17. Dagurinn í dag er líka merkilegur fyrir þær sakir að Þórhallur Dan Kristjánsson, einn af stofnendum Hótelsins, hefði orðið 80 ára í dag. Þórhallur Dan þótti mjög skemmtileg persóna og lét hann mikið að sér kveða í bæjarfélaginu. Hann vann hjá rafmagnsveitunni og síðustu árin sem slökkviliðsstjóri hér í bæ. Hann sat einnig í hreppsnefnd. Þórhallur tók mikinn þátt í félagslífinu, var virkur félagi í Leikfélagi Hornafjarðar, Karlakórnum og Lions.</description>
      <alt>Þórhallur Dan Kristjánsson</alt>