Betur fór en á horfðist
Betur fór en á horfðist þegar Slökkvilið Hornafjarðar fékk útkall sl. laugardag um eld í olíutanka á hafnarsvæðinu, þegar eldurinn reyndist vera í gömlum olíutanka sem verið var að rífa. Tankarnir tveir sem Hringrás var að rífa niður og fjarlægja voru fyrir löngu úr notkun en smá olíulögg var í öðrum þeirra og komst neisti úr skurðartækjunum í olíuna svo af varð nokkurt bál og var slökkviliðið kallað á staðinn. Það gekk fljótt og vel að slökkva í tankanum með léttvatni, sagði Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, og Hringrásarmenn gátu svo haldið áfram að brytja tankana niður og fjarlægja.
Menn taka auðvitað talsverðan kipp þegar boð koma um eld í olíutanka og ekki er nánari skilgreining á því en staða þarna var sú að ekki var stórhætta á ferðinni og óneytanlega er mjög gott að losna við þessa gömlu tanka af svæðinu.





Skrifa athugasemd