Good Morning America í útsendingu frá Jökulsárlóni
Einni vinsælasti morgunþáttur Amerísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC mun senda út frá Jökulsárlóni og verður útsendingin um miðjan nóvember frá lóninu. Að sögn Einar Björns Einarssonar staðarhaldara á Jökulsárlóni þá var haft samband við hann s.l. mánudag vegna útsendingarinnar og í framhaldi af því staðfest að útsendingin yrði um miðjan nóvember. Um er að ræða innslag í þáttinn frá Lóninu. Útsending sem þessi er án efa mjög góð kynning fyrir ferðaþjónustuna hér í Ríki Vatnajökuls. Fram kemur á fréttavefnum Vísi að útsendingin frá Íslandi verður liður í vikulöngu ferðalagi þáttarins, en hann mun verða sendur út frá sex öðrum löndum í sömu viku. Á Íslandi ætla þáttastjórnendur að fjalla um gróðurhúsaáhrifin og hnattræna hitun.
Einnig kemur fram á fréttavefnum að Good Morning America hafi áður verið með beina útsendingu frá Íslandi, en fyrir níu árum var þátturinn sendur út frá Austurvelli og Bláa lóninu. Um fimm milljónir manna horfa á þáttinn á degi hverjum og er því um umtalsverða landkynningu að ræða.





Skrifa athugasemd