Keppa í annað sinn í First Lego League keppninni
Í ár ætla Heppuskóli og Hafnarskóli að keppa í annað sinn í First Lego League keppninni. Í keppninni eru krakkar á aldrinum 10 ? 16 ára keppa og eru 6 ? 10 keppendur í hverju liði. Markiðið með keppninni er að vekja áhuga grunnskólanemenda á vísindum og tækni ásamt því að byggja upp sjálfstraust þeirra og leiðtogahæfni. LEGO?hönnunarkeppnin eða First Lego League er alþjóðleg keppni sem samanstendur af þraut þar sem keppendur smíða vélmenni og forrita það til að vinna verkefni í sambandi við þemað, sem í ár er Nanótækni, og gera skemmtiatriði. Einnig er kominn nýr liður í keppnina, dagbók sem á síðan að sýna dómnefnd. Nanótækni eru rannsóknir sem fara fram á nanóskala sem er 100.000 X minni en breidd á mannshári, Eins og þið sjáið er þetta ekki auðvelt verkefni og þá er gott að hafa leiðbeinendur en það eru, Guðlaug Úlfarsdóttir, í Heppuskóla og Eiríkur Már Hansson, í Hafnarskóla.
Aðalkeppnin verður haldin 11. nóvember í Öskju húsi Náttúrufræðistofnunar Háskóla Íslands, og liðið sem sigrar keppir í Noregi og auðvitað ætla bæði liðin sér að vinna keppnina. ;D Við hvetjum alla sem eru í Reykjavík á þessum tíma að koma og hvetja okkur til sigurs.
Í Hafnarskólaliðinu sem heitir Nanónördarnir eru 10 krakkar sem eru: Anna Mekkín Reynisdóttir, Anna Sigurðardóttir, Aron Birkir Óttarsson, Guðjón Ingibergur Ólafsson, Karen Björg Halldórsdóttir, Karen Þórelfur Gunnardóttir, Kolbrún Birna Ólafsdóttir, Kristey Lilja Valgeirsdóttir, Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Þórhildur Sigurðardóttir
Í Heppuskólaliðinu Ninkanpúp eru 9 krakkar sem eru : Bríet Bragadóttir, Freyr Sigurðarson, Gerður Mekkín Gunnarsdóttir, Guðlaug Margrét Björnsdóttir, Jón Bjarni Bjarnason, Pálmi Freyr Gunnarsson, Pálmi Geir Sigurgeirsson, Úlfar Kári Jóhannsson og Þorleifur Haukur Sigurðsson
- Ninkanpúp og Nanónördarnir




Skrifa athugasemd