Október
Fiskistofa Höfn
Fiskistofa Höfn
Starfsmenn Fiskistofu á Höfn, Ólafur Vilhjálmsson og Sævar Guðmundsson ásamt Erni Sævari Hólm sem hefur séð um að þjálfa þá félaga.

20.10.2006 Október

Starfsemi hafin hjá Fiskistofu á Höfn

Starfsmenn nýs útibús Fiskistofu á Höfn eru komnir til starfa þó ekki hafi formleg opnun útibúsins farið fram ennþá. Við erum að koma þessu á stað hér og skipuleggja þetta allt segir Sævar Guðmundsson sem er útibústjóri Fiskistofu á Höfn, við byrjuðum að vinna hér fyrsta þessa mánaðar og höfum við komið okkur fyrir í Garðeyjarhúsinu til að byrja með eða þar til ákvörðun um framtíðarhúsnæði hefur verið ákveðin. Með Sævari eru veiðieftirlitsmennirnir Þorbergur Torfason og Ólafur Vilhjálmsson sem skipta með sér störfum á sjó og landi við eftirlit um borð í skipum og í fiskvinnslum á svæðinu frá Hornafirði til Borgarfjarðar eystri. Sævar segir að næg verkefni verði fyrir þá félaga og það sem starfið gengur út á er m.a. að fylgjast með að lögleg veiðarfæri séu notuð og á það við í öllum þessum sameiginlegu fiskistofnum, að rétt sé vigtað, farið sé rétt að í sambandi við undirmálsreglur og ekki sé verið að veiða of smáan fisk og eins að ekki sé brottkast á fiski.

Sævar segir að þeim félögum líst bara mjög vel á þetta starf og þeim hlakki til að takast á við það þau verkefni sem þeir munu fá. Hans segir að einnig sé samstarf og samvinna sé við Hafrannsóknarstofnun t.d. í sambandi við skyndilokanir ef afli er of smár og þá hafi þeir samband við fiskifræðing og svæðum sé lokað í samvinnu við hann.

Útibúið á Höfn er þriðja útibú Fiskistofu á landinu hin eru á Akureyri og í Vestmannaeyjum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica