Október
Nanna Dóra við mælitækin
Nanna Dóra við mælitækin
Nanna Dóra við mælitækin

19.10.2006 Október

Hvernig er veðrið?

Síðastliðin 14 ár hafa veðurlýsingar komið frá Akurnesi en nýlega varð þar breyting á og nú kemur veðrið frá Höfn. Skýringin á þessu er sú að nýr veðurathugunarmaður, Nanna Dóra Ragnarsdóttir, hefur tekið við veðurathugunum og mælingaræki Veðurstofu sett upp í garðinum heima hjá henni á Smárabrautinni. Nanna Dóra er enginn nýliði í þessu starfi en hún er dóttir Ingunnar Jónsdóttur í Akurnesi sem hefur verið veðurathugunarmaður í Hornafirði í tæp 14 ár og var Nanna Dóra í foreldrahúsum þegar veðurathugunarstöðin fluttist þangað og tók þátt í starfinu meðan hún var heima og hefur verið til taks þegar foreldrarnir hafa þurft á að halda. Veðurathuganir eru mjög bindandi starf því gera þarf athuganir og mælingar á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn sama hvort er á helgum dögum eða virkum. Stærsta mælingin er kl. 9 og 18 en á öðrum tímum er mælt hitastig, metinn vindhraði,vindátt, skýjahæð, skýjamagn, skyggni, og skýjategundir og svo hvernig veðrið er. Þetta er gert við hverja athugun og lesið af loftvoginni.

Þegar Nanna Dóra var spurð um hvort þetta væri ekki alltof bindandi starf að sinna því allan sólarhringinn, sagði hún það vera, en ég hef kynnst þessu þannig að ég vissi að hverju ég gekk og þegar foreldrar mínir ákváðu að hætta fannst mér tilvalið að taka þetta starf sem hentar mér vel og ég get unnið heima. Þó þetta sé bindandi starf þá gefur það margt í staðinn og það er dýrmætt að geta verið heima hjá börnunum og þurfa ekki að sækja vinnu utan heimilisins, ég fæ líka góða aðstoð við þetta allt hjá manninum mínum. Mér finnst þetta skemmtilegt starf, það er gaman að fylgjast með veðrinu og náttúrunni. Eiginmaður Nönnu Dóru er Grétar Már Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands og börnin eru þrjú níu, fjögurra og eins árs.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica