Skinney fékk troll í skrúfuna
Erlingur SF 65 dró í morgun fiskiskipið Skinney til Hornafjarðar eftir að skipið hafði fengið fiskitrollið í skrúfuna þar sem það var að veiðum í Lónsbugt. Björn Lóðs fór á móti skipunum út fyrir ós og fylgdi skipunum inn á höfnina. Skinney Þinganes hefur selt veiðiskipið Ásgrím Halldórsson til Írlands. Björg Jónsdóttir ÞH-321 sem Skinney Þinganes keypti í sumar er komin til síldveiða og hefur hlotið nafnið Krossey SF-20. Góð síldveiði hefur verið og samkvæmt tölum frá Hafnarvoginni eru komin 3700 tonn á land frá 1.sept.
Jóna Eðvalds, Áskell og Krossey eru á síld og landa Jóna og Áskell síldinni til vinnslu í Skinney Þinganesi en í Krossey er síldin unnin í frystingu um borð.





Skrifa athugasemd