Nemendur á náttúrufræðibraut heimsækja Mývatn
Fimmtudaginn 12. október síðast liðinn héldu 12 nemendur úr FAS áleiðis til Egilsstaða. Þetta voru að stærstum hluta nemendur á náttúrufræðibraut sem eru um það bil hálfnaðir í sínu námi eða lengra komnir. Einnig voru skiptinemarnir Fah frá Tælandi og Konstanze frá Austurríki með í för. Á Egilsstöðum sameinaðist hópurinn rúmlega 30 krökkum frá ME. Einnig voru þrír kennarar með í för. Haldið var rakleiðis í Kröflu og byrjað á því að skoða virkjunina. Sá sem tók á móti hópnum þar var Garðar Héðinsson sem er búsettur á Hornafirði en sækir vinnu í Kröfluvirkjun. Eftir að hafa kynnt sé virkjunina var haldið að Leirhnjúk þar sem gaus talsvert í Kröflueldum og labbað þar. Þar er að finna hraun á mismunandi aldri og því auðvelt að sjá hvernig gróðurinn nemur land og klæðir það smám saman.
Síðar sama dag voru gervigígarnir við Skútustaði skoðaðir en þeir myndast þegar hraun rennur yfir votlendi. Kvöldinu eyddu krakkarnir í Jarðböðunum og horfðu bæði á norðurljós og stjörnur á meðan Hornfirðingar máttu þola þrumur og eldglæringar. Hópurinn gisti í félagsheimilinu Skjólbrekku hjá Skútustöðum og hafði jafnframt aðstöðu þar til að matast.
Seinni daginn var hið besta veður og má með sanni segja að Mývatnssveitin hafi skartað sínu fegursta. Eftir morgunverð var byrjað á því að labba á Hverfjall eða Hverfell eins og sumir vilja kalla fjallið. Þetta er einn flottasti sprengigígur á Íslandi og þó víðar væri leitað. Gígurinn er um 140 metra djúpur og um einn kílómetri í þvermál. Af gígbarminum er geysifagurt útsýni til allra átta og vel mátti sjá þau mörgu eldvörp sem einkenna Mývatnssveitina. Frá Hverfjalli var síðan gengið í Dimmuborgir sem er líka einstæð náttúruperla. Talið er að Dimmuborgir hafi myndast þegar kvika safnaðist saman í stórri lægð og hafi verið farin að storkna þar. Allt í einu hafi kvikan fundið sér farveg til að renna og rann þá sú kvika úr lægðinni sem enn var bráðin. Eftir stóðu tignarlegar hraunborgir sem í dag eru þaktar gróðri og kjarri.
Það var komið vel fram yfir hádegi þegar haldið var af stað úr Mývatnssveitinni og heim á leið. Að þessu sinni var gamla leiðin yfir Möðrudalsöræfin farin en af henni er einstök fjallsýn inn til hálendisins. Komið var við hjá Skessugarði á Jökuldalsafrétt. Þetta er stór og mikill jökulgarður og er hann sérstakur vegna þess hve björgin í honum er stór.
Það má segja að hópurinn hafi verið einstaklega heppinn með veður því þegar haldið var af stað á fimmtudagsmorgni var grenjandi rigning og hélst svo fram yfir hádegi á fimmtudeginum og þegar komið var til baka til Egilsstaða var farið að þyngja töluvert yfir. Hópurinn kom svo til Hafnar á föstudagskvöldið.
Þetta var í alla staði hin ágætasta ferð. Það er orðin hefð að FAS og ME fari saman í náttúruskoðunarferðir á haustin og hafa þær alltaf tekist mjög vel. Nemendur læra að tengja námsefnið við landslagið og skilja enn betur hina fjölbreyttu náttúru landsins. Þá er ekki síður mikilvægt að hitta nemendur úr öðrum skólum og kynnast þeim. Það eru kannski bestu meðmælin með þessum ferðum að sumir nemendur hafa sóst eftir að fara í ferðirnar oftar en einu sinni.




Skrifa athugasemd