Október
Rjupur_102006
Rjupur_102006
Rjúpur

16.10.2006 Október

Rjúpnaveiði hafin

Rjúpnaveiðitímabilið tók gildi í gær og fóru nokkrir áhugasamir veiðimenn á hefðbundnar veiðislóðir í Lóni svona rétt til að kanna aðstæður að sögn eins þeirra. Veður var ekki ákjósanlegt til veiða, þoka og súld víða og sagði viðmælandi vefsins að ekki hefði verið nokkur rjúpa sjáanleg þar sem hann fór um. Ekki má fara til veiða mánudaga, þriðjudag og miðvikudaga og líkur veiðitímabilinu 30. nóv.

Vonandi viðrar vel til rjúpnaveiði á fimmtudag en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Norðaustan 8-13, rigning austast, en 13-18 síðdegis og léttir til vestan Öræfa. Norðaustan 8-13 og bjart á morgun. Hiti 0 til 5 stig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica