Leikdagskráin Brot úr sögu banka í útibúi Landsbankans á mánudag
Hátíðarstemmning hringinn í kringum landið er titill á ferð Farandleikhúss Landsbankans þar sem þeir fagna áfram 120 ára afmæli bankans með því að halda hátíð í útibúum Landsbankans, hringinn í kringum landið. Farandleikhúsið sýnir "Brot úr sögu banka" sem er leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er saga Landsbankans, árin 1886-2006, í tónum og tali. Handritshöfundur er Felix Bergsson og í leikstjórn Vals Freys Einarssonar. Leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Jakob Þór Einarsson og Kristjana Skúladóttir. Valdimar Kristjónsson stjórnar lifandi tónlist. Verkið verður frumsýnt í Apalbankanum Reykjavík og í útibúi Landsbankans á Akureyri miðvikudaginn 11. október. Farandleikhúsið verkið mun verðs sýnt hér á Höfn í útibúi Landsbankans mánudaginn 16. okt. frá kl. 11:30 til 13.30.
Sproti laumar sér með í farandhópinn og syngur, dansar og skemmtir börnunum að sögusýningunni lokinni.Veitingar verða í boði og allir eru hjartanlega velkomnir.





Skrifa athugasemd