Október
Leikskólinn Lönguhólar Umferðarvika
Leikskólinn Lönguhólar Umferðarvika
Krakkar á leikskólanum Lönguhólum í nýju vestunum á umferðarviku. (Mynd MJ)

11.10.2006 Október

Leikskólarnir fá gönguvesti að gjöf frá Skinney/Þinganesi

Þegar leikskólarnir Lönguhólar og Krakkakot opnuðu aftur eftir sumarfrí barst þeim sending frá Skinney/Þinganesi og var innihald hennar gönguvesti fyrir öll börn í leikskólunum. Vilja starfsfólk og börn Lönguhóla og Krakkakots senda fyrirtækinu og eigendum þess bestu þakkir fyrir. Þetta gerir það að verkum að öllum börnum er unnt að fara í gönguferð í vestum á sama tíma og hefur það ekki verið hægt áður. Hlutverk vesta af þessu tagi er að börnin sjáist betur í umferðinni og ef þau taka sig út úr hópnum er auðvelt fyrir starfsfólk að þekkja þau frá öðrum börnum.

Hefðbundið skólastarf er í fullum gangi og gengur mjög vel. Aldursblöndun sem varð í skólunum í vor gengur vonum framar að sögn skólastjóra leikskólanna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica