Október
Haustlitaferð í Bæjarstaðarskóg 2006
Haustlitaferð í Bæjarstaðarskóg 2006
Haustlitaferð í Bæjarstaðarskóg 2006 (Mynd Gísli Geir)
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

06.10.2006 Október

Frjálst er í fjallasal

Laugardaginn 16. sept. s.l. fór Ferðafélagið í haustlitaferð í Bæjarstaðarskóg sem var jafnframt síðasta ferð sumarsins. Veðrið lék við okkur þó svo að veðurspá dagsins segði annað, logn var, heiðskýrt og um 20 stiga hiti. Alls mættu 16 manns í þessa ferð.Tók Ragnar Frank á móti okkur í Skaftafelli og fylgdi okkur inn fyrir Morsá en vegna anna gat hann ekki verið með okkur allan daginn. Á leiðinni vestur eftir sagði hann okkur frá því helsta sem fyrir augum bar og skemmtilegar sögur sem tengjast þjóðgarðinum m.a. að þar væru til sölu nafnlausir tindar fyrir ásættanlegt verð. En þjóðgarðurinn á t.d. Ragnarstind, Kristínartinda og Þórunnartind. Er inn á sand kom kvöddum við Ragnar og héldum sem leið lá inn í Bæjarstaðarskóg og þaðan vestur að Réttargili. Þar fékk ungdómurinn að vaða og leika sér um stund í tæru bergvatninu, einnig sáust sumir þeir eldri lauma sér úr skóm og sokkum og vaða með krökkunum um lækinn og skríða svo upp á bakkann og láta sólina þurrka sér, aðrir létu sér nægja að rölta um og skoða gróðurinn eða tína ber.

Eftir dágáða stund voru allir reknir upp úr og haldið að Heitulækjum sem eru skammt vestar og ofar í hlíðinni. Þar rennur ca 30 stiga heitt vatn eftir litlum læk og í hann er hlaðinn lítil setlaug, þar fengu þeir sem vildu að fara í fótabað. Að því loknu var haldið inn að jökli þar sem Skeiðará spýtist undan jökulröndinni. Heimleiðin lá svo um gamlan farveg árinnar , en nú rennur hún öll vestast á sandinum , svo gamli farvegurinn austast er þurr og hefur verið það síðan 2003. Þegar við komum í Skaftafell var öllum boðið í kakó og kleinur á pallinum hjá Ragnari. Að endingu viljum við þakka öllum þeim sem gengu með félaginu í sumar kærlega fyrir sumarið og hlökkum til að sjá ykkur með hækkandi sól.

Væntanlega verður fyrsta ferð ársins 2007 út í Hrómundaey í Álftarfirði
Takk fyrir okkur.
Ferðanefndin

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica