Október
american_graffiti
american_graffiti
American graffiti

05.10.2006 Október

Frumsýna American graffiti 14. október

Laugardaginn 14. október n.k. mun Hornfirska skemmtifélagið í fimmta sinn frumsýna glæsilega tónlistardagskrá á Hótel Höfn. Að þessu sinni verður rifjað upp gömlu góðu árin þegar rokkið var að slíta barnsskónum og flytja lög á borð við At the hoop, Locomotion, That´ll be the day, Be bob a lula , Runaway , Peppermint twist, Chappel of love, Walk the Line, C´mon everybody , Lollipop og In his kiss. Í tengslum við sýninguna bíður Hótel Höfn upp á 3ja rétta kvöldverð og dansleik með hljómsveitinni KUSK. Matseðillinn verður, í forrétt amerísk kjúklingaveisla með teriyaki, í aðalrétt, lambapiparsteik með gulrótarflani, steiktum maís og buffalósósu, í eftirrétt verður milk shake "American graffiti".

Í tengslum við sýningarnar bíður Hótel Höfn gistingu með morgunverði á einstaklega góðu verði eða tvær nætur á verði einnar. Eins manns herbergi kr. 7.100,- Tveggja manna herbergi kr. 10.150,-
Sýninga verða einnig 21. október, 28. október, 4. nóvember, 11. nóvember og 18. nóvember
Nánari upplýsingar og miðapantanir á Hótel Höfn í síma 478 1240 og á www.skemmtifelag.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica