Málþing í Skaftafelli. 10 ár frá Skeiðarárhlaupi
Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá Skeiðarárhlaupinu 1996 verður haldið málþing á Hótel Skaftafelli laugardaginn 7. október n.k. Ákveðið er að minnast þessara miklu náttúruhamfara með hressilegri og skemmtilegri samverustund á Hótel Skaftafelli í Freysnesi. Rifjað verður upp ýmislegt sem uppá kom þann tíma sem hlaupið stóð, tímann þar sem fólkið í Freysnesi og aðrir Öræfingar lögðu ómælda vinnu í að taka á móti þeim fjölda fólks sem þar var meðan mest gekk á og eins þegar ráðist var í að koma vegarsambandi á yfir sandinn. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður verður með skoðunarferð að útfalli Skeiðará. Ég ætla að bjóða upp á skoðunarferð upp að nýja útfallinu við Skeiðará síðan í hlaupinu 1996 sagði Ragnar, þá kom mikil spýja út svolítið vestar en gamla útfallið er og braut þar ísinn frá og ísspöngin fór af stað niður farveginn, þar var aðalrásin þegar útfallið tók ekki við meiru og sprengdi hún jökulinn þar. Þetta er það sem við ætlum að skoða í þessari ferð. Hægt er að komast þessa leið á bílum.
Nú er tækifærið að eiga ánægjulega helgi í Öræfasveit þar sem haustlitirnir skarta sínu fegursta og þeir sem ætla að fá gistingu á Hótel Skaftafelli ættu að hafa samband við hótelið sem fyrst.
Dagskrá málþingsins:
Kl.12:00
Súpa og salat í boði Hótel Skaftafells.
Fræðsluerindi um Skeiðarárjökul.
Kl.13.15
Rannsóknir í Grímsvötnum. Hvað vitum við meira um eldstöðina.
Magnús Tumi Guðmundssson jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands.
Kl.14:00
Skeiðará og varnargarðar.
Helgi Jóhannesson, vatnaverkfræðingur hjá Vegagerðinni
Kl.14:30
Hop Skeiðarárjökuls og rennslismælingar á Skeiðará. Grímsvötn-Skeiðarárjökull - Skeiðarársandur - myndasýning 1995-2006.
Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur hjá Orkustofnun.
Kl.15:15
Kaffi.
Kl.16 til 18.
Skoðunarferð að útfalli Skeiðará.
Leiðsögumaður: Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður.
Kl. 20:00
Hátíðarkvöldverður á Hótel Skaftafelli.
Veislustjóri: Stefán Benediktsson, fyrrverandi þjóðgarðsvörður.
Tekið er á móti pöntunum í kvöldverð og gistingu í síma 478-1945 í dag þriðjudaginn 3. október n.k.





Skrifa athugasemd