Október
ErnirAir
ErnirAir
Jetstream

03.10.2006 Október

Flugfélagið Ernir tekur við flugi á Hornafjörð

Frá og með næstu áramótum mun Flugfélagið Ernir taka við áætlunarflugi til Hornafjarðar. Flogið verður 7 til 9 sinnum í viku en áætlað er að félagið kaupi 19 sæta Jetstream flugvél sem búin er jafnþrýstibúnaði. Í sumar fór fram ríkisútboð þar sem Landsflug, Flugfélag Íslands, Flugfélag Vestmannaeyja og Ernir buðu í flugleiðirnar Hornafjörð, Bíldudal, Gjögur, Sauðárkróks og var Flugfélagið Ernir valið til að sinna áætlun eftir að áreiðanleikakönnun hafði farið fram. Hjá flugfélaginu Erni sem er rótgróið 40 ára gamalt flugfélag vinna um 10 manns og mun þeim fara fjölgandi með þessum verkefnum. Að sögn Harðar Guðmundssonar framkvæmdarstjóra og eiganda flugfélagsins þá verður afgreiðslan á flugleiðinni á Hornafjarðarflugvelli og Reykjavíkurflugvelli með sama hætti og áður, flug verður hægt að bóka í gegnum bókunarkerfi á flugfelag.is.

Að sögn Harðar er stefnt að því að fljúga til Hornafjarðar 7-9 níu sinnum í viku og auka flugtíðni á háannatímanum.

Sjá nánar um Flugfélagið Erni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica