Búið að opna afurðasölu Norðlenska á Höfn
Þá er kominn tími á að drífa sig í sláturgerðina og kaupa kjöt í frystikistuna. Búið er að opna afurðasöluna í Sláturhúsi Norðlenska á Höfn og er hún sem áður í umsjá Unnar Guðmundsdóttur. Verð á heilum slátrum er 758 kr. og fylgja fjórir keppir (gervikeppir) með. Þeir sem vilja fá glænýtt kinda- eða lambakjöt geta fengið heila skrokka á 809 kr. kg.af lambakjöti og ærkjötið á 399 kr. og kjötið er síðan sagað eftir óskum kaupanda. Þindar kosta 222 kr.kg. lifur 255 kr. hjörtu 201 kr. eystu 445 kr. blóð 1 líter 83 kr. hausar 454 kr. mör 79 kr. gervikeppir eru á kr. 66 stk.
Ekki mun vera auðveldara að fá vambir en verið hefur undanfarin haust nema síður sé og eftir því sem heyrst hefur mun helst vera að leita vamba norður á Vopnafirði.
Afurðasalan verður opin frá kl.10-16 virka daga fram til 20. október.
Unnur vill taka fram að betra er að panta sláturafurði svo allt verði til staðar.





Skrifa athugasemd