Október
Sjónvarpsbarnið
Sjónvarpsbarnið
Guðlaug fyrir framan stjónvarpið.
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

02.10.2006 Október

Ánægjulega afmælisferð til Reykjavíkur

Í sjónvarpsþættinum "Afsakið meðan við afmælum" sem var tileinkaður sögu sjónvarpsins í tilefni af 40 ára afmæli þess kom fram að þegar sjónvarpið fór í loftið mættu sjónvarpsmenn á fæðingardeild Landsspítalans til að afhenda kornabarni sem fæddist þann sama dag , á þeirri stundu er útsending hófst, sjónvarpstæki að gjöf. Þetta barn var Guðlaug Úlfarsdóttir kennari við Heppuskóla og var hún mætt í þáttinn til að rifja upp þennan atburð. Aðspurð hvort hún myndi eftir því að vera kölluð sjónvarpsbarnið og hvort það hafi verið partur af hennar lífi sagði hún að það hefðu helst verið eldri konur sem höfðu kallað hana það fram eftir aldri. Í þeim töluðu orðum í þættinum, þá var stórt breiðvarpstæki látið síga niður og var Guðlaugu tilkynnt að tækið væri gjöf til hennar á þessu tímamótum og væri tækið í lit, lét Þórhallur Gunnarsson það fylgja með í gríni að það væri aðeins hægt að horfa á ríkissjónvarpið í tækinu.

Þetta er svakalega flott sjónvarp sem að sjálfsögðu kemur sér vel, sagði Guðlaug í samtali við vefinn. Sjónvarpið er ekki komið austur því það var of stórt til að komast í bílinn hennar og er því væntanlegt í vikunni. Hún hefur áður fengið afmælisgjafir frá sjónvarpinu, þegar hún var smá kríli fékk hún flotta dúkku og á 25. ára fékk hún Íslensku Alfræðiorðabókina. Eftir ánægjulega afmælisferð til Reykjavíkur er Guðlaug mætt til sinna daglegu starfa við að uppfræða unglingana í Heppuskóla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica