Október
Þórhallur Dan Kristjánsson
Þórhallur Dan Kristjánsson
Þórhallur Dan Kristjánsson

01.10.2006 Október

Þórhallur Dan hefði orðið 80 ára á 40 ára afmæli Hótels Hafnar

Í dag 1.október er haldið upp á 40 ára afmæli Hótels Hafnar og er gestum og gangandi boðið í afmæliskaffi frá kl. 14 til 17. Dagurinn í dag er líka merkilegur fyrir þær sakir að Þórhallur Dan Kristjánsson, einn af stofnendum Hótelsins, hefði orðið 80 ára í dag. Þórhallur Dan þótti mjög skemmtileg persóna og lét hann mikið að sér kveða í bæjarfélaginu. Hann vann hjá rafmagnsveitunni og síðustu árin sem slökkviliðsstjóri hér í bæ. Hann sat einnig í hreppsnefnd. Þórhallur tók mikinn þátt í félagslífinu, var virkur félagi í Leikfélagi Hornafjarðar, Karlakórnum og Lions.

Þórhallur lést fyrir aldur fram árið 1975 og er eftirlifandi kona hans Ólöf Sverrisdóttir. Þau áttu þrjú börn, Olgu, Sverri og Guðrúnu Ernu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica