Þrykkjan á Landsmót Samfés
Nú um helgina fara fimm unglingar úr félagsmiðstöðinni Þrykkjunni ásamt starfsmanni á Landsmót Samfés sem haldið er að þessu sinni í Árbænum í Reykjavík. Unglingarnir sem fara eru úr Þrykkjuráðinu. Reiknað er með að u.þ.b. 350 unglingar á aldrinum 13 - 16 ára taki þátt. Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum úr félagsmiðstöðvum landsins hafi vettvang til að mynda tengsl og kynnast nýjum hugmyndum sem hægt er að nýta í starfi félagsmiðstöðvanna. Þema mótsins í ár er FJÖLMENNING. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun heimsækja mótið. Boðið er upp á mismunandi smiðjur sem unglingarnir velja sér. Alþjóðleg grillveisla verður og hátíðarkvöldverður þá verður ball með Svitabandinu og lýkur mótinu á sunnudagsmorgun. Þrykkjan hefur tekið þátt í þessum landsmótum í nokkur ár.
Vetrarstarf Þrykkjunnar hófst miðvikudaginn 6.september. Að vanda er stefnt á að hafa starfið fjölbreytt og skemmtilegt. Þegar eru nokkrir skemmtilegir viðburðir að baki og margir spennandi framundan. Í Þrykkjunni ræður unga fólkið ríkjum með aðstoð starfsmanna. Fyrst viðburðurinn var fimmtudagskvöldið 7. september þá var kosið í Þrykkjuráð. Mikil stemning var og hlutu eftirtalin kosningu, úr 10. bekk: Hilmar Guðjónsson, Þyrí Imsland og Sigfinnur Björnsson, úr 9. bekk voru kosin: Stefán Lárus Reynisson, Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Ásgrímur Arason, úr 8.bekk voru kosin: Róslín A. Valdemarsdóttir, Halldór Þórsson og Lejla Cardaklija. Formaður ráðsins er Hilmar.
Hlutverk Þrykkjuráð er að móta starfið í Þrykkjunni með starfsmönnum. Helgina 16. og 17. sept. fór ráðið ásamt starfsmanni í vinnuferð upp í Lón þar sem hugmyndir voru settar fram um vetrarstarfið og hópurinn hristi sig saman. Ráðið fundar einu sinni í viku með starfsmanni. Þrykkjan er í Sambandi félagsmiðstöðva á Íslandi SAMFÉS en sambandið stendur fyrir ýmsum stórum viðburðum á landsvísu. Yfir 80 félagsmiðstöðvar eru í sambandinu.
Þrykkjan starfar með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára, einnig stendur framhaldsskólanemum til boða að vera með starfsemi í þar.
Starfið í Þrykkjunni á að einkennast af áhuga, virkni og ábyrgð unglinganna. Þrykkjan á að vera opin fyrir nýjum straumum og stefnum í unglingamenningu , þannig að flestir finni eitthvað við sitt hæfi í starfinu. Eru börn og unglingar hvött til að kíkja í Þrykkjuna.
Starfsmaður Þrykkjunnar nú er Steindór Sigurjónsson. Haukur H.Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi er yfirmaður hennar.
Þrykkjan er opin fyrir 8. til 10. bekkinga á mánudögum kl.14:50 ? 18:00 og 20:00-22:00 á miðvikudögum frá kl. 14:50 til 18:00 og föstudögum frá kl. 20:00 til 22:30 ef diskótek eða böll eru þá er opið til kl. 23:00. Opið er fyrir 6. og 7. bekk annan hvern þriðjudag frá kl. 14:50 til 18:00.
Síminn í Þrykkjuni er 478-1161.
Starfsemi Þrykkjunnar er auglýst á SkjáVarpinu og eins í skólunum.
Þrykkjan er til húsa í Sindrabæ en þar er Tónskóli Austur Skaftafellssýslu einnig með sína starfsemi.





Skrifa athugasemd