September
Atli Gíslason
Atli Gíslason
Atli Gíslason

27.09.2006 September

Atli Gíslason, gefur kost á sér í fyrsta sæti VG í Suðurkjördæmi.

Fréttatilkynning

Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Atli hefur látið að sér kveða í baráttu fyrir kvenfrelsi, náttúruvernd og réttindum launafólks og útlendinga bæði innan og utan þings síðustu ár. Meðal mála sem Atli hefur flutt á þingi eru frumvarp til breytinga á jafnréttislögum um stjórnvaldsúrræði til að uppræta kynbundinn launamun, frumvarp um að uppsagnir úr starfi skuli vera skriflegar, rökstuddar og málefna-legar og um miskabætur vegna ólögmætra uppsagna. Frumvarp sem tryggir að útlendingar sem starfa hér á landi, hvort sem er á vegum íslenskra eða erlendra atvinnurekenda, starfsmannaleigna eða hliðstæðra fyrirtækja, njóti í einu og öllu réttinda samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Frumvörp þar sem dvalarleyfi erlendra ungmenna undir átján ára aldri er rýmkað og veitt undanþága frá dvalarleyfi háð maka ef um heimilisofbeldi er að ræða.


Einnig má nefna frumvarp síðastliðið vor til að leiðrétta skerðingu á vaxtabótum svo og þingsályktun um kynjahlutföll við ráðningu forstöðumanna og skipan í nefndir og ráð á vegum hins opinbera. Sem lögmaður og femínisti hefur Atli skrifað fræði- og blaðagreinar um kynfrelsi kvenna og verið virkur í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi.

Atli hefur flutt mörg fordæmisgefandi mál svo sem einkamál í nauðgunarmáli eftir að ákæruvald felldi niður mál vegna handvammar lögreglu við rannsókn málsins. Jafnframt hefur Atli flutt, og verið beinn málsaðili, að dómsmálum til að hnekkja umhverfismati vegna Kárahnjúkavirkjunar og veitingu starfsleyfis fyrir álver í Reyðarfirði. Þá hefur Atli rekið fjölda skaðabótamála, verið settur ríkissaksóknari í efnahagsbrotamálum og lögreglustjóri í máli er snéri að vinnubrögðum lögreglu.

Atli hefur rekið Lögfræðistofu Atla Gíslasonar í rúman aldafjórðung og meðal annars starfað fyrir Eflingu - stéttarfélag og fleiri stéttarfélög og félagsmenn þeirra.

Atli á þrjá uppkomna syni og þrjú barnabörn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica