Vika símenntunar
Þessa viku er vika símenntunar sem er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir hagsmunaaðilar eru kallaðir til samstarfs. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir og allir þeir sem koma að símenntun nýta sér verkefnið til hvatningar og kynningar á símenntunarstarfi og starfsþjálfun sem fram fer hér á landi. Í ár er aðaláherslan á að ná til fólks sem hefur stutta formlega menntun og hvetja það til þess að sækja sér fræðslu. Átakinu er ætlað að hvetja, styðja og örva almenning til þess að afla sér upplýsinga um hvað í boði er og nýta sér það. Þekkingarnet Austurlands skipuleggur dagskrá í vikunni þar sem boðið er upp á ókeypis námskeið og ráðgjöf og er almenningur hvattur til þess að nýta sér það. Næst komandi föstudag er námskeið í Nýheimum frá kl. 17. til 19. þar sem Laufey Eiríksdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur hjá ÞNA kennir að fara inn og leita á internetinu.
Símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum er í dag miðvikudagurinn 27. september en þá eru fyrirtæki og stofnanir hvött til að tileinka daginn fræðslumálum starfsmanna til dæmis með því að kynna starfsmönnum fræðslustefnu eða halda námskeið. Þá er einnig tilvalið að sækja til aðila sem halda námskeið, kynningar eða örnámskeið og fá þá í heimsókn eða jafnvel sækja þá heim.





Skrifa athugasemd