September
Mömmumorguninn í Safnaðarheimili Hafnarkirkju
Mömmumorguninn í Safnaðarheimili Hafnarkirkju
Mömmumorguninn í Safnaðarheimili Hafnarkirkju
Mynd 6 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

26.09.2006 September

Mömmumorgnar byrjaðir í Hafnarkirkju

Fyrsti mömmumorguninn á þessu hausti var í Safnaðarheimili Hafnarkirkju í morgun. Hópurinn sem þar var samankominn var glæsilegur og fjölmennari en dæmi eru um þar á bæ, því alls mættu 16 mæður með börn sín sem öll, að einu undanskyldu, eru fædd á þessu ári. Hvað er svo gert á mömmumorgnum? ,,Við berum saman bækur okkar, gefum góð ráð og fáum góð ráð sögðu mömmurnar, þetta er alveg frábært að hittast hér fá sér kaffisopa og rabba saman. Hugmyndin er líka að fá einhverja til okkar með fræðsluerindi og fleira er í athugun sagði ein mamman en það er alveg pottþétt að þetta verður góður félagsskapur sem við og börnin okkar höfum mikið gagn af. Pabbarnir hafa ekki sýnt mikinn áhuga á að mæta í félagsskapinn a.m. k. hefur enginn boðað komu sína ennþá. Meðhjálparinn, Örn Arnarson var alsæll með svona met mætingu og í tilefni þess bauðst hann til að sjá um uppþvottinn eftir kaffið og annan frágang ,,í þetta sinn".

Mömmumorgnar verða alla þriðjudagsmorgna í Safnaðarheimilinu í vetur og eru góðar horfur á að hópurinn verði enn fjölmennari þegar líður á veturinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica