September
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Úr Ríki Vatnajökuls, frá Breiðamerkursandi (úr myndasafni @ebe)

23.09.2006 September

NAUST, elsta náttúruverndarfélag landsins 35 ára

Fréttatilkynning

Aðalfundur Náttúrusamtaka Austurlands (NAUST) var haldinn á Hótel Skaftafell laugardaginn 9.sept. sl. Samþykkt var að breyta lögum félagsins á þann veg að stjórnarmenn yrðu kosnir af öllu félagssvæðinu sem er frá Skeiðarársandi til Bakkafjarðar. Í stjórn voru kosnir sem aðalmenn: Guðrún Schmidt, Strönd II í Skógum, Andrés Skúlason, Djúpavogi og Þorstein Bergsson, Unaósi Hjaltastaðaþinghá. Varamenn nýrra stjórnar eru: Halla Eiríksdóttir, Egilsstöðum, Sigurður Guðjónsson, Borg á Mýrum og Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Fellabæ. Skarphéðinn Þórisson sýndi myndir frá Malaví og Guðríður Þorvarðardóttir, UST, greindi frá stöðu mála í sambandi við friðlýsing Gerpissvæðisins, en NAUST hefur haft frumkvæði að friðun svæðisins. NAUST heldur uppá 35 ára afmæli félagsins á þessu ári en það er elsta náttúruverndarfélag landsins. Félagsmenn þess eru 200.

Markmið samtakanna er: Að vernda náttúrulegt umhverfim svo sem landslag, loft, vatn, sjó, plöntu- og dýralíf, að stuðla að því að náttúrulegar auðlindir verði nytjaðar skynsamlega, landsmönnum til heilla í nútíð og framtíð, að ofangreindum markmiðum skal unnið í samræmi við lög um náttúruvernd og í samvinnu við alla þá aðila sem láta sig náttúruvernd varða, einnig munu samtökin leitast við að hafa vinsamleg samskipti við alla þá aðila sem kunna að hafa hagsmuna að gæta er andstæðir eru náttúruverndarsjónarmiðum, öll starfsemi samtakanna skal grundvallasta á hlutlausu mati, þekkingu og rannsóknum eftir því sem framast er unnt.


Á fundinum voru samþykktar eftirfylgjandi ályktanir:

1.Um Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðju Alcoa
Aðalfundur NAUST 2006 minnir á fyrri samþykktir samtakanna um stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi og varar við þeirri margvíslegu hættu sem af þeim stafar fyrir fólk og umhverfi á Austurlandi. Fundurinn tekur undir með þeim mörgu sem lýst hafa áhyggjum vegna ófullnægjandi undirbúnings þessara framkvæmda, jafnt Kárahnjúkavirkjunar og álvers á Reyðarfirði. Fundurinn telur ekki rétt að hleypa vatni á Hálslón án undangengins óháðs mats á virkjuninni með tilliti til jarðfræði og hönnunar mannvirkja. Aðalfundurinn fordæmir þá hneykslanlegu afstöðu Alcoa og Skipulagsstofnunar að taka fjárhagslega hagsmuni Alcoa fram yfir heilbrigði íbúa við Reyðarfjörð og Eskifjörð með því að hafna kröfum fjölmargra um vothreinsun við álverksmiðjuna. Þá krefst aðalfundurinn þess að framkvæmdaraðilum sé gert að standa undanbragðalaust við sett skilyrði um frágang og vöktun að framkvæmdum loknum og að komið verði í veg fyrir frekari spjöll og tjón á landi og lífríki í nágrenni þeirra.

2.Um samstarf náttúruverndarfélaga
Aðalfundur NAUST hvetur til aukins samstarfs frjálsra náttúru- og umhverfisverndarsamtaka til að ná megi sem bestum árangri í málum sem samstaða er um í þeirra röðum. Fundurinn telur athyglisverðar framkomnar hugmyndir um að þessi samtök myndi með sér sameiginlegan vettvang um náttúruvernd sem sé óháður stjórnvöldum og gæti m.a. staðið fyrir árlegu þingi.

3.Um Vatnajökulsþjóðgarð.
Aðalfundur NAUST 2006 lýsir yfir fullum stuðningi við tillögur og ábendingar fulltrúa náttúruverndarsamtaka í undirbúningsnefnd um Vatnajökulsþjóðgarð. Jafnframt hvetur fundurinn stjórnvöld til að taka í senn af raunsæi og stórhug á málefnum þessa væntanlega þjóðgarðs, m.a. með nægum fjárframlögum og öðrum aðgerðum svo unnt verði stofna þjóðgarðinn með myndarbrag og ganga til samninga við þá aðila sem geta hugsað sér að leggja til hans landsvæði eða vilja tengjast Vatnajökulsþjóðgarði með öðrum hætti. Áherzla er lögð á að þjóðgarðurinn nái yfir landslagsheildir umhverfis jökulinn, þar á meðal Langasjó og Fögrufjöll að friðlýsta svæðinu við Laka.

4.Um Fjarðarárvirkjun:
Aðalfundur NAUST 2006 harmar að Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra skuli hafa hundsað vel rökstuddar kröfur um að virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði fari í umhverfismat. Varar fundurinn við því fordæmi sem þetta kann að gefa og krefst þess að mat á umhverfisáhrifum verði framvegis meginregla sem ekki verði gengið framhjá af stjórnvöldum.

5.Um Ísland og loftslagsbreytingar
Aðalfundur NAUST 2006 gagnrýnir aðgerðaleysi stjórnvalda hérlendis við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og fordæmir framkomnar hugmyndir um að leita enn og aftur sérstakrar undanþágu fyrir Ísland innan Kyotóferilsins til losunar gróðurhúsalofts frá stóriðju.
Samþykkt samhljóða.

6. Um hagsmunatengsl og fégjafir
Aðalfundur NAUST telur brýnt að stjórnvöld setji formlegar siðareglur um samskipti við fyrirtæki og aðra aðila sem standa að framkvæmdum sem valda umhverfistjóni. Óeðlilegt er að opinberir aðilar taki við fégjöfum frá slíkum aðilum eða auðveldi þeim á annan hátt áróður til réttlætingar umhverfisspjöllum.

7.Um stöðvun stóriðjuframkvæmda
Aðalfundur NAUST 2006 telur rétt að nú þegar verði gert a.m.k. 5 ára hlé á öllum frekari stóriðjuframkvæmdum hérlendis eftir þau hörðu átök sem staðið hafa yfir í heilan áratug. Næstu ár verði notuð til víðtækra rannsókna á áhrifum vatnsafls- og jarðvarmavirkjana og iðnaðar í krafti þeirra á þjóðarhag, mannlíf og umhverfi. Að fengnum niðurstöðum verði mótuð stefna sem víðtæk sátt geti orðið um meðal landsmanna áður en til greina komi að ráðast í frekari framkvæmdir á þessu sviði.

Ulla Pedersen
Fráfarandi formaður

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica