Unglingalandsmótsnefnd á vinnufundi
Undirbúningur fyrir 10. unglingalandsmót UMFÍ sem verður á Hornafirði um verslunarmannahelgina 2007 er kominn á gott skrið. Í gær kom undirbúningsnefndin saman í Nýheimum og fór yfir stöðu mála. Að sögn Ragnhildar Einarsdóttur gengur undirbúningur vel, verið er að ganga frá samningi milli UMFÍ og USÚ og verður hann sennilega undirritaður á sambandsráðsfundi UMFÍ í lok október. Einnig er verið að vinna samning á milli USÚ og Sveitarfélagsins Hornafjarðar því eins og kunnugt er sér undirbúningsnefnd þessi eingöngu um framkvæmd mótsins en Sveitarfélagið um uppbyggingu íþróttamannvirkja og aðstöðu fyrir tjaldgesti. Hvað varðar mannvirkin þá er stefnt að því að keppa í sundlaugarkerinu sem á að verða tilbúið fyrir mótið, en því miður er jarðvegur enn að síga og ekki hægt að hefja framkvæmdir fyrr en sigið hættir. Ragnhildur leggur áherslu á að enn sé þetta vel framkvæmanlegt og að nefndin vinni út frá því að laugin verði komin. Hvað íþróttavöllinn áhrærir þá er nægur tími þar til stefnu því yfirborðið verður ekki lagt á hann fyrr en í vor en sennilega verður fljótlega byrjað að hækka völlinn upp.
Við vonum að hingað komi 1000 keppendur á aldrinum 11 -18 ára og að við fáum hingað a.m.k. 10.000 gesti yfir helgina. Undirbúningurinn er margþættur því við þurfum að hafa einhverja afþreyingu fyrir alla aldursflokka. Þetta er gríðarlega skemmtilegt verkefni og gaman að finna hve bæjarbúar eru jákvæðir og tilbúnir að taka þátt og sama hvert leitað er allir taka okkur og þessu stóra og metnaðarfulla verkefni vel, segir Ragnhildur að lokum.





Skrifa athugasemd