Vilja fleiri smáhýsi fyrir ferðafólk
Vestnorden ferðakaupsráðstefnan var haldin í Laugardalshöllinni 12.-13. sept. og voru þátttakendur um 550 þar af um 300 ferðaþjónustuaðilar. Suðausturland og Austurland voru með sameiginlegan sýningarbás og sá Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Jöklasýningarinnar um að kynna Austur-Skaftafellssýslu. Guðrún er mjög ánægð með ráðstefnuna sem sótt var af ferðakaupsaðilum víðsvegar úr heiminum. Þetta byrjaði reyndar hér heima með því að við fengum 14 fulltrúa frá ferðaskrifstofum víðsvegar að úr heiminum í svona ,,fyrir Vestnordenferð" sem skipulögð var hér. Gestirnir komu með flugvél og byrjuðum við á skoðunarferð um Höfn og skoða Jöklasýninguna, síðan var haldið á Skálafellsjökul og þaðan að Smyrlabjörgum þar sem snæddur var kvöldverður og gist. Nokkrir ferðaþjónustuaðilar af svæðinu komu í Smyrlabjörg um kvöldið og ræddu við gestina.
Daginn eftir var haldið áfram vestur, komið við á Jökulsárlóni og Freysnesi og áfram til Reykjavíkur á Vestnorden ferðakaupsráðstefnuna.
Guðrún er fullviss á að heimsókn sem þessi hefur mikið gildi fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu því sjón er sögu ríkari. Jökulinn vakti mestan áhuga þessa hóps, hann var greinilega nr. 1-2 og 3 og það eina sem þeir höfðu orð á að vantaði hér væri gistihýsi, smáhús sem ekki þyrfti að panta með fyrirvara því um 80% viðskiptavina þeirra væru bílaleigufólk sem ferðast á eigin vegum og þeir eru hættir að bóka gistingu fyrirfram, því væri mikil þörf á meira framboði af smáhúsum.
Kynning ferðaþjónustuaðila á ráðstefnunni fór þannig fram, segir Guðrún, að menn frá erlendu ferðaskrifstofunum og ferðasöluaðilar komu í sýningabásana að tala við okkur og var ákveðinn viðtalstími fyrir hvern og einn. Þetta gekk mjög vel og við fengum um 20 viðmælendur einnig útbýttum við möppum með afþreyingarbæklingum yfir allt sem hér er í boði. Næsta Vestnorden ferðakaupsráðstefna verður haldin í Færeyjum í sept. 2007 og verður það sú 22 sem haldin er.





Skrifa athugasemd