September
Vegarollur
Vegarollur
Enginn skortur verið á blessuðum vegarollunum.

20.09.2006 September

Enginn skortur verið á blessuðum vegarollunum

Umferð á þjóðvegum í Austur-Skaftafellssýslu hefur gengið vel í sumar utan þess að eitt banaslys varð í Öræfum þar sem ökumaður mótorhjóls lést við útafakstur. Það sem helst bjátaði á hjá okkur í lögreglunni hér var að við vorum með bilaðan bíl um tíma og því ekki í stakk búnir til að sinna umferðamálum í sýslunni sem skildi sagði Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn. Nú eru bílamálin komin í lag og við erum komnir með fleiri mál núna á tveim mánuðum en á sex mánuðum áður. Alls hafa 130 ökumenn verið teknir fyrir of hraðan akstur hér í sýslunni og mældist mesti hraði 158 km. en alls voru 160 ökumenn teknir allt árið í fyrra. Fjölmennastir í hópi þeirra sem teknir eru fyrir of mikinn hraða eru ungir ökumenn og einnig útlendingar. Útlendingarnir gefa helst þá skýringu á að þeir séu að flýta sér og þurfi að komast á þennan eða hinn staðinn áður en þeir fari heim. Í sumar hafa 6 ökumenn verið teknir undir áhrifum áfengis.

Sigurður segir að sekt fyrir 105 km hraða séu 10 þús. kr en viðkomandi sleppi með 7.500 kr. ef hann greiði innan eins mánaðar, síðan stig hækkar sektin með hraðanum og þegar komið er í 140 km hraða og meira taka við ökuleyfissvipting og auknar sektir. Mun minna, en undanfarin ár, hefur verið um að ekið hafi verið á búfé hér í sýslunni í sumar og hefur þó enginn skortur verið á blessuðum vegarollunum.

Aðspurður um hvað sé helst til ráða til að bæta umferðina og fækka slysum segir Sigurður að það vera fyrst og fremst að auka eftirlit, manna lögreglubíl út á vegina allt sumarið. Fullt eftirlit er það eina sem ber árangur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica