Verið að ganga frá útboðsgögnum í reiðskemmu
Hjá Hestamannafélaginu Hornfirðing er núna verið að ganga frá útboðsgögnum í reiðskemmu sem reist verður við Stekkhól í Nesjum. Við erum búnir að fá vilyrði frá Ríkisstjórninni um 15 mkr. framlag til byggingarinnar og fáum það greitt þegar húsið er fokhelt segir Kjartan Hreinsson formaður félagsins. Útboð verða send til þeirra sem selja stálgrindar- og límtrésskemmur og áætluð stærð er um 25x60m. Jarðvinnsla fyrir húsið verður boðin út í þessari viku og í nóvember ætti að liggja fyrir hvernig hús verður fyrir valinu og gangi allt samkvæmt áætlun ætti að takast að reisa reiðskemmuna við Stekkhól í vetur. Hestamannafélagið Hornfirðingur varð 70 ára í maí sl.og verður þeirra tímamóta minnst með veglegri afmælisveislu í byrjun vetrar, ekki nánari tímasetning komin.
Um 140 manns er í félaginu og skiptist nokkuð jafnt milli karla og kvenna, nema í hópi þeirra yngri þar hafa stúlkurnar vinninginn. Húsleysi háir mikið öllu námskeiðs og skólahaldi í því sem tilheyrir hestamennsku hér en áhugi er mikill hjá unga fólkinu og því fullvíst að reiðskemmunnar er beðið með mikilli eftirvæntingu.





Skrifa athugasemd