September
bjorgunarskip_3
bjorgunarskip_3
Björgunarskipið Ingibjörg

18.09.2006 September

Björgunarskipið Ingibjörg kallað út að Jökulsárlóni

Um klukkan 6 seinnipart laugardags var Björgunarskipið Ingibjörg kallað út til að svipast um eftir manni sem hafði ætlað að fara til Hafnar frá Jökulsárlóni á gúmmíbát með utanborðsmótor. Að sögn Einar Björns Einarssonar staðarhaldara á Jökulsárlóni þá vissi hann af ferðum mannsins og að hann hafi ætlað að fara frá lóninu og sigla til Hafnar og sækja þar félaga sinn, þegar Einar kom til Hafnar fékk hann fregnir af því að maðurinn hefði ekki skilað sér og því ræst hann út Björgunarskipið, enda hafði veður og sjólag versnað frá því að maðurinn lagði af stað frá Jökulsárlóni.

Allt fór betur en á horfðist, þegar björgunarskipið var komið hálfa leið að Jökulsárlóni skilaði maðurinn sér í land á Jökulsárlóni heill á húfi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica