September
Í sláturhúsinu 19.september
Kind
Kind (úr myndasafni)

11.09.2006 September

Sauðfjárslátrun hefst hjá Norðlenska

Sauðfjárslátrun hefst í sláturhúsi Norðlenska á Höfn í dag og útlit á að slátrað verði 33-34 þúsund fjár sem er svipaður fjöldi og sl. haust. Slátrað hefur verið 600 lömbum í sláturhúsinu nú síðsumars og t.d voru tvær ferðir farnar eftir lömbum vestur fyrir Hellu. Erfiðlega hefur gengið að fá fólk til starfa í sláturhúsið á haustin en nú hefur Einar Karlsson sláturhússtjóri þann hátt á að byrja á að ráða 25 erlenda starfsmenn til starfa sem er helmingur þess sem til þarf. Það er bara haft samband við erlenda ráðningastofu til að fá þetta fólk og það þarf að gera með góðum fyrirvara því það tekur 6-8 vikur að fá kennitölur fyrir fólkið segir Einar. Við fáum tvo slátrara frá Nýja Sjálandi og hitt starfsfólkið kemur frá norðurlöndunum og Póllandi, svo er vonandi að við fáum nógu marga heimamenn til starfa.

Norðlenska á gistiheimilið Nýja-Bæ á Höfn og þar verður aðkomufólkið til húsa. Flytjandi annast fjárflutninga fyrir starfssvæði Sláturhúss Norðlenska á Höfn og verður flutt fé af svæðinu frá Breiðdal að austan og allt vestan úr Landssveit. Einar segir að minna verði flutt út af kjöti í haust eða 10% en hefur verið 36% sl. 2 ár. Stórgripa og svínaslátrun er, eftir því sem þarf, í sláturhúsinu á Höfn allt árið og t.d. er 2-3 hrossum slátrað í hverri viku og fer hrossakjötið í kjötvinnslustöð á höfuðborgarsvæðinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica