Flestir leita upplýsinga um hvar sé hægt að komast í búð
Góð aðsókn hefur verið að Jöklasýningunni á Höfn í sumar og er fjöldi gesta 7.042 það sem af er árinu en voru 7101 allt árið í fyrra. Í upplýsingaþjónustuna, sem er í húsi Jöklasýningarinnar, hafa komið 10.593 manns á árinu. Guðrún Jónsdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi segir að flestir sem koma til að leita upplýsinga spyrji hvar sé hægt að komast í búð, sem segir okkur að greinilega er þörf á betri merkingum á verslunum hér á Höfn. Einnig er mikið spurt um gististaði og hvar hægt sé að fá gistingu, þá er fólk ekki búið að panta gistingu fyrirfram og heldur að hún sé alltaf til staðar en það er nú öðru nær. Þó fjöldi húsbíla, fellihýsa og tjaldvagna hafi margfaldast ár frá ári minnkar ekki eftirspurn eftir gistiplássi hér um slóðir.
Eftir 1. september eru engar rútuferðir austur á land og segir Guðrún það komi mjög illa niður á ferðamönnum sem ekki eru á bíl og kannski aka ekki sjálfir bíl og þurfa t.d. að ná í ferjuna á Seyðisfirði, þá er ekki um annað að velja en kaupa leigubíl með sig, sem um leið hækkar ferðakostnaðinn verulega. Kynnisferðir voru með daglegar rútuferðir í Egilsstaði í sumar en hættu þeim um sl. mánaðarmót sem er allt of snemmt þar sem fjöldi ferðamanna er enn á ferð um landið. Guðrún segir að oft sé erfitt að fá bílaleigubíla hér og er það nokkuð sem bæta þarf úr til að halda uppi góðri þjónustu.
Upplýsingaþjónustan og Jöklasýningin eru opin kl.13-18 í september og eftir það er opið kl.13-16 virka daga.




Skrifa athugasemd