Dýpkunarframkvæmdir ganga vel
Dýpkunarskipið Scandia er þessa dagana að dæla efni úr höfninni, skipið er frá Gáma- og tækjaleigu Austurlands en fyrirtækið var lægst á sínum tíma í útboði sem fram fór fyrr á þessu ári. Á skipinu er fimm manna áhöfn, þrír pólverjar og tveir danir. Dælt er í stóran safnpoka og síðan hefur skipið losað við Mikleyjarál og nú í gegnum lögn sem liggur út í Miðós eins og var gert með dýpkunarskipinu Soffíu. Scandia hafði áður í byrjun ágúst gert tilraun með dælingu á efni innan hafnarinnar og gekk hún vel. Þetta sama skip var einnig við tilraunadælingar á Grynnslunum utan við Ósinn á síðasta ári. Reiknað var með í útboðinu á sínum tíma að dæla um 45.000 rúmmetrum vegna stofndýpkunar til að ná viðunandi dýpi innan hafnarinnar en nú er reiknað er með að dælt verði upp 70 þúsund rúmmetrum í þessari skorpu en það samsvarar að Íþróttahús Heppuskóla verði fyllt 15 sinnum.
Reiknað með um 25.000 rúmmetrum árlega næstu 3 árin og auk þess möguleika á framlengingu til 2 ára til viðbótar. Miðað við að verkið gangi eins vel og til þessa verður því væntanlega lokið um miðjan næsta mánuð.





Skrifa athugasemd