September
Göngum til góðs
Göngum til góðs
Göngum til góðs

05.09.2006 September

Gengið til Góðs á laugardag

Deildir Rauða krossins um allt land eru nú í óða önn að undirbúa söfnun Rauða krossins, Göngum til góðs, til hjálpar börnum í Malaví, Suður-Afríku og Mósambík sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Lögð er sérstök áhersla á aðstoð við börn sem misst hafa foreldra sína og styðja við bakið á foreldrum sem eru veikir svo þeirra njóti við sem lengst. Hver deild skipuleggur starfið með sínum hætti, enda aðstæður og hefðir mismunandi eftir byggðarlögum og landshlutum. Þeir sem vilja gerast sjálfboðaliðar hér í Sveitarfélaginu eru boðnir velkomnir í hús Rauða krossins að Hafnarbraut en þar verður opið hús þennan dag frá kl. 10:30 - 13:30 á laugardaginn.

Magnhildur Gísladóttir formaður Rauðakrossdeildarinnar á Hornafirði vill koma því á framfæri við bæjarbúa að þeir taki vel á móti sjálfboðaliðum þegar þeir birtast á laugardag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica