Ekki var annað að sjá en nýliðarnir stæðu sig með prýði
Nemendur FAS á Höfn settu svip á miðbæ Hafnar í morgun þegar busavígsla fyrstu bekkinga fór fram. Nemendur söfnuðust saman í verslunarmiðstöðinni Miðbæ, málaðir og klæddir svo sem tilheyrir busavígslu og eftir að hafa skemmt sér þar um stund var farið út þar sem margskonar þrautir biðu fyrstu bekkinga og sáu eldri bekkingar um að þar væru engin undanbrögð. Ekki var annað að sjá en nýliðarnir stæðu sig með prýði og eru þar með boðnir velkomnir í hóp fullorðinna nemenda FAS. Hjördís Skírnisdóttir kennari í FAS segir kennara hafa annan hátt á að bjóða nemendur velkomna í skólann, það geri þeir með því að bjóða öllum nemendum upp á grillaða hamborgara eftir skólasetningu og umsjónarfund.
Hjördís segir að skýrar reglur séu um busavígslur og hvað megi og hvað ekki og að þeim reglum sé fylgt. Rúmlega þrjátíu nemendur eru í fyrsta bekk og þar með tveir skiptinemar, stúlkur frá Tælandi og Austurríki.




Skrifa athugasemd