September

Kornskurður í Árbæ

Fær um 50 tonn af korni - 29.09.2006 Fréttir Brunnhóll

Kornrækt hefur aukist mikið hjá bændum í Austur-Skaftafellssýslu og gengur vel. Sæmundur Jón Jónsson bóndi í Árbæ á Mýrum er með korn á 20 hekt. lands og þar á bæ er unnið við kornskurð og þreskingu þessa dagana.

Lesa meira
 
Hreindýr í nágrenni Hafnar

Ábendingar um ólöglegar veiðar á hreindýrum - 29.09.2006 September

Samkvæmt frétt á vef Umhverfisráðuneytisins þá hefur ráðuneytinu að undanförnu borist fjölmargar ábendingar um ólöglegar veiðar á hreindýrum á veiðisvæðum 8 og 9 á Mýrum og í Hornafirði í Austur-Skaftafellssýslu. Fullyrt er að þessar ólöglegu veiðar hafi átt sér stað undanfarin ár utan lögbundins veiðitíma, einkum á þeim tíma sem nú fer í hönd. Af þessum sökum og með vísan til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum hefur umhverfisráðuneytið komið þessum ábendingum á framfæri við sýslumanninn á Höfn í Hornafirði og farið þess á leit að hann geri það sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir ólöglegar veiðar á hreindýrum með virkara eftirliti. Það skal tekið fram að brot gegn lögunum varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum og sviptingu skotvopna- og veiðileyfis. Lesa meira
 
Þrykkuráð á Landsmót Samfés 2006

Þrykkjan á Landsmót Samfés - 29.09.2006 September

Nú um helgina fara fimm unglingar úr félagsmiðstöðinni Þrykkjunni ásamt starfsmanni á Landsmót Samfés sem haldið er að þessu sinni í Árbænum í Reykjavík. Unglingarnir sem fara eru úr Þrykkjuráðinu. Reiknað er með að u.þ.b. 350 unglingar á aldrinum 13 – 16 ára taki þátt. Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum úr félagsmiðstöðvum landsins hafi vettvang til að mynda tengsl og kynnast nýjum hugmyndum sem hægt er að nýta í starfi félagsmiðstöðvanna. Þema mótsins í ár er FJÖLMENNING. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun heimsækja mótið. Boðið er upp á mismunandi smiðjur sem unglingarnir velja sér. Alþjóðleg grillveisla verður og hátíðarkvöldverður þá verður ball með Svitabandinu og lýkur mótinu á sunnudagsmorgun. Þrykkjan hefur tekið þátt í þessum landsmótum í nokkur ár. Lesa meira
 
Hotel-Hofn_IMG_6351

Hótel Höfn býður í afmæliskaffi um helgina - 28.09.2006 September

Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá opnun Hótels Hafnar verður öllum íbúum sveitarfélagsins boðið í afmælisveislu á Hótel Höfn sunnudaginn 1 október frá kl. 14 til 17. Boðið verður upp á kaffi og köku. Tónlistaratriði verða flutt og gestum verður boðið að skoða Hótelið, þar á meðal herbergin sem eflaust fáir bæjarbúar hafa litið augum. Myndasýningar verða á stórum skjáum þar sem bera að líta myndir frá 40 ára tímabili Hótels Hafnar. Hótel Höfn er eitt af fyrstu hótelum á landsbyggðinni sem byggt var sem heilsárshótel og tók til starfa 8 árum áður en hringvegurinn var opnaður. Yfir sumartímann þegar mesta er að gera starfa um 30 manns á hótelinu en að meðaltali veiti hótelið 20 heilsársstörf. Lesa meira
 
Fernur eiga framhaldslíf

Söfnum og styðjum - fernur eiga sér framhaldslíf - 28.09.2006 Sindra fréttir

Þetta er heiti samstarfsverkefnis Sveitarfélagsins Hornfjarðar og Ungmennafélagsins Sindra. Verkefnið fellst í að safna umbúðarfernum og koma til endurvinnslu. Sveitarfélagið hefur staðið fyrir söfnum á fernum með grenndargámum, en það hefur ekki skilað ásættanlegum árangri. Því er hér um að ræða endurvakningu á þessu brýna verkefni og nú geta bæjarbúar stutt við bakið á íþróttahreyfingunni með sínu framtaki. Valdemar Einarsson framkvæmdarstjóri Sindra segir að með þessu verkefni sé verið að gera virkilega góða hluti, í því felst að Fimleikadeild Sindra fær greitt 35 kr. fyrir hvert kíló sem deildin nær að safna og koma til endurvinnslu. “Við bindum því miklar vonir við að heimili á Höfn taki sig á í umhverfismálum og styrki um leið gott málefni. Kveikjan að þessu máli er að Fimleikadeildin er að kaupa ný áhöld og þarf á töluverðu fjármagni að halda. Við leituðum til sveitarfélagsins með þessa hugmynd þar sem við vissum af því að þarna væri góður möguleiki á fjáröflun .” Valdemar segir jafnframt að verkefnið verði kynnt mjög vel á næstu dögum. Dreifibréfi verði dreift í heimili og söfnunin kynnt. Lesa meira
 
Flekadrengir

Taktu þátt, hvert ár skiptir máli - 28.09.2006 September

Í dag fimmtudaginn 28. september er Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Þá eru kynnt nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Athygli foreldra unglinganna verður einnig vakin á þessum ráðum sem og allra fjölskyldna í landinu. Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis. Lesa meira
 
Ragnhildur Jónsdóttir

Ragnhildur Jónsdóttir ráðin sem verkefnisstjóri hjá ÞNA - 27.09.2006 September

Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) hefur ráðið Ragnhildi Jónsdóttur sem verkefnisstjóra á Höfn. Hlutverk hennar er náms- og starfsráðgjöf við einstaklinga, samskipti við fjarnema, þróun símenntunar og umsjón með námskeiðum Þekkingarnetsins. Ragnhildur sem hefur unnið að menntamálum á Hornafirði síðustu 25 ár er menntuð sem sérkennari og náms- og starfsráðgjafi. Áður starfaði hún við sérkennslu í Hafnarskóla, ráðgjöf hjá Skólaskrifstofu Hornafjarðar, og nú síðast sem námsráðgjafi í Heppuskóla en þar mun hún verða með annan fótinn til áramóta. Að sögn Ragnhildur hefur hún lengi haft áhuga á að starfa að fullorðinsfræðslu og símenntun. Henni líst vel á starfið hjá ÞNA þar sem það er fjölbreytt og bíður upp á margs konar þróunarverkefni. Lesa meira
 
Atli Gíslason

Atli Gíslason, gefur kost á sér í fyrsta sæti VG í Suðurkjördæmi. - 27.09.2006 September

Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Atli hefur látið að sér kveða í baráttu fyrir kvenfrelsi, náttúruvernd og réttindum launafólks og útlendinga bæði innan og utan þings síðustu ár. Meðal mála sem Atli hefur flutt á þingi eru frumvarp til breytinga á jafnréttislögum um stjórnvaldsúrræði til að uppræta kynbundinn launamun, frumvarp um að uppsagnir úr starfi skuli vera skriflegar, rökstuddar og málefna-legar og um miskabætur vegna ólögmætra uppsagna. Frumvarp sem tryggir að útlendingar sem starfa hér á landi, hvort sem er á vegum íslenskra eða erlendra atvinnurekenda, starfsmannaleigna eða hliðstæðra fyrirtækja, njóti í einu og öllu réttinda samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Frumvörp þar sem dvalarleyfi erlendra ungmenna undir átján ára aldri er rýmkað og veitt undanþága frá dvalarleyfi háð maka ef um heimilisofbeldi er að ræða. Lesa meira
 
Frá námskeiði fiskvinnslufólks

Vika símenntunar - 27.09.2006 September

Þessa viku er vika símenntunar sem er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir hagsmunaaðilar eru kallaðir til samstarfs. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir og allir þeir sem koma að símenntun nýta sér verkefnið til hvatningar og kynningar á símenntunarstarfi og starfsþjálfun sem fram fer hér á landi. Í ár er aðaláherslan á að ná til fólks sem hefur stutta formlega menntun og hvetja það til þess að sækja sér fræðslu. Átakinu er ætlað að hvetja, styðja og örva almenning til þess að afla sér upplýsinga um hvað í boði er og nýta sér það. Þekkingarnet Austurlands skipuleggur dagskrá í vikunni þar sem boðið er upp á ókeypis námskeið og ráðgjöf og er almenningur hvattur til þess að nýta sér það. Næst komandi föstudag er námskeið í Nýheimum frá kl. 17. til 19. þar sem Laufey Eiríksdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur hjá ÞNA kennir að fara inn og leita á internetinu. Lesa meira
 
Mömmumorguninn í Safnaðarheimili Hafnarkirkju

Mömmumorgnar byrjaðir í Hafnarkirkju - 26.09.2006 September

Fyrsti mömmumorguninn á þessu hausti var í Safnaðarheimili Hafnarkirkju í morgun. Hópurinn sem þar var samankominn var glæsilegur og fjölmennari en dæmi eru um þar á bæ, því alls mættu 16 mæður með börn sín sem öll, að einu undanskyldu, eru fædd á þessu ári. Hvað er svo gert á mömmumorgnum? ,,Við berum saman bækur okkar, gefum góð ráð og fáum góð ráð sögðu mömmurnar, þetta er alveg frábært að hittast hér fá sér kaffisopa og rabba saman. Hugmyndin er líka að fá einhverja til okkar með fræðsluerindi og fleira er í athugun sagði ein mamman en það er alveg pottþétt að þetta verður góður félagsskapur sem við og börnin okkar höfum mikið gagn af. Pabbarnir hafa ekki sýnt mikinn áhuga á að mæta í félagsskapinn a.m. k. hefur enginn boðað komu sína ennþá. Meðhjálparinn, Örn Arnarson var alsæll með svona met mætingu og í tilefni þess bauðst hann til að sjá um uppþvottinn eftir kaffið og annan frágang ,,í þetta sinn’’. Lesa meira
 
Silvia Hromadko

Býður upp á þýskukennslu á Höfn í vetur - 25.09.2006 September

Enn hefur aukist á námsframboð á Höfn. Í vetur mun Silvia Hromadko bjóða Hornfirðingum að læra þýsku á fimmtudagskvöldum. Silvia er þýsk og kemur til okkar frá Djúpavogi og má því segja að þar með sé verið að efla enn meir menningarsamstarf milli þessara sveitarfélaga. Silvia er kona Svavars Sigurðssonar sem reynir nú að hafa hemil á kvennakórnum annað árið í röð. Hún er einnig dóttir ritstjórans Hennig Söhl, sem enn í dag þrátt fyrir að vera kominn á eftirlaun má hvorki sjá né heyra vitleysu í þýskunni. Strangur skóli þar. Hér er upplagt tækifæri til að ná grunnatriðum á þessu tungumáli og geta boðið þýskum ferðamönnum góðan dag á þeirra ástkæra ylhýra og sjálfsagt eitthvað meira. Þetta er sem sagt upplagt fyrir alla sem starfa við ferðaþjónustu, byrjendur og lengra komna. Lesa meira
 
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)

NAUST, elsta náttúruverndarfélag landsins 35 ára - 23.09.2006 September

Aðalfundur Náttúrusamtaka Austurlands (NAUST) var haldinn á Hótel Skaftafell laugardaginn 9.sept. sl. Samþykkt var að breyta lögum félagsins á þann veg að stjórnarmenn yrðu kosnir af öllu félagssvæðinu sem er frá Skeiðarársandi til Bakkafjarðar. Í stjórn voru kosnir sem aðalmenn: Guðrún Schmidt, Strönd II í Skógum, Andrés Skúlason, Djúpavogi og Þorstein Bergsson, Unaósi Hjaltastaðaþinghá. Varamenn nýrra stjórnar eru: Halla Eiríksdóttir, Egilsstöðum, Sigurður Guðjónsson, Borg á Mýrum og Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Fellabæ. Skarphéðinn Þórisson sýndi myndir frá Malaví og Guðríður Þorvarðardóttir, UST, greindi frá stöðu mála í sambandi við friðlýsing Gerpissvæðisins, en NAUST hefur haft frumkvæði að friðun svæðisins. NAUST heldur uppá 35 ára afmæli félagsins á þessu ári en það er elsta náttúruverndarfélag landsins. Félagsmenn þess eru 200. Lesa meira
 
Vinnufundur undirbúningsnefndar

Unglingalandsmótsnefnd á vinnufundi - 22.09.2006 September

Undirbúningur fyrir 10. unglingalandsmót UMFÍ sem verður á Hornafirði um verslunarmannahelgina 2007 er kominn á gott skrið. Í gær kom undirbúningsnefndin saman í Nýheimum og fór yfir stöðu mála. Að sögn Ragnhildar Einarsdóttur gengur undirbúningur vel, verið er að ganga frá samningi milli UMFÍ og USÚ og verður hann sennilega undirritaður á sambandsráðsfundi UMFÍ í lok október. Einnig er verið að vinna samning á milli USÚ og Sveitarfélagsins Hornafjarðar því eins og kunnugt er sér undirbúningsnefnd þessi eingöngu um framkvæmd mótsins en Sveitarfélagið um uppbyggingu íþróttamannvirkja og aðstöðu fyrir tjaldgesti. Hvað varðar mannvirkin þá er stefnt að því að keppa í sundlaugarkerinu sem á að verða tilbúið fyrir mótið, en því miður er jarðvegur enn að síga og ekki hægt að hefja framkvæmdir fyrr en sigið hættir. Ragnhildur leggur áherslu á að enn sé þetta vel framkvæmanlegt og að nefndin vinni út frá því að laugin verði komin. Hvað íþróttavöllinn áhrærir þá er nægur tími þar til stefnu því yfirborðið verður ekki lagt á hann fyrr en í vor en sennilega verður fljótlega byrjað að hækka völlinn upp. Lesa meira
 
Smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn

Vilja fleiri smáhýsi fyrir ferðafólk - 21.09.2006 September

Vestnorden ferðakaupsráðstefnan var haldin í Laugardalshöllinni 12.-13. sept. og voru þátttakendur um 550 þar af um 300 ferðaþjónustuaðilar. Suðausturland og Austurland voru með sameiginlegan sýningarbás og sá Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Jöklasýningarinnar um að kynna Austur-Skaftafellssýslu. Guðrún er mjög ánægð með ráðstefnuna sem sótt var af ferðakaupsaðilum víðsvegar úr heiminum. Þetta byrjaði reyndar hér heima með því að við fengum 14 fulltrúa frá ferðaskrifstofum víðsvegar að úr heiminum í svona ,,fyrir Vestnordenferð’’ sem skipulögð var hér. Gestirnir komu með flugvél og byrjuðum við á skoðunarferð um Höfn og skoða Jöklasýninguna, síðan var haldið á Skálafellsjökul og þaðan að Smyrlabjörgum þar sem snæddur var kvöldverður og gist. Nokkrir ferðaþjónustuaðilar af svæðinu komu í Smyrlabjörg um kvöldið og ræddu við gestina. Lesa meira
 
Vegarollur

Enginn skortur verið á blessuðum vegarollunum - 20.09.2006 September

Umferð á þjóðvegum í Austur-Skaftafellssýslu hefur gengið vel í sumar utan þess að eitt banaslys varð í Öræfum þar sem ökumaður mótorhjóls lést við útafakstur. Það sem helst bjátaði á hjá okkur í lögreglunni hér var að við vorum með bilaðan bíl um tíma og því ekki í stakk búnir til að sinna umferðamálum í sýslunni sem skildi sagði Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn. Nú eru bílamálin komin í lag og við erum komnir með fleiri mál núna á tveim mánuðum en á sex mánuðum áður. Alls hafa 130 ökumenn verið teknir fyrir of hraðan akstur hér í sýslunni og mældist mesti hraði 158 km. en alls voru 160 ökumenn teknir allt árið í fyrra. Fjölmennastir í hópi þeirra sem teknir eru fyrir of mikinn hraða eru ungir ökumenn og einnig útlendingar. Útlendingarnir gefa helst þá skýringu á að þeir séu að flýta sér og þurfi að komast á þennan eða hinn staðinn áður en þeir fari heim. Í sumar hafa 6 ökumenn verið teknir undir áhrifum áfengis. Lesa meira
 
Sjávarútvegsráðherra ávarpar mótsgesti

Verið að ganga frá útboðsgögnum í reiðskemmu - 19.09.2006 September

Hjá Hestamannafélaginu Hornfirðing er núna verið að ganga frá útboðsgögnum í reiðskemmu sem reist verður við Stekkhól í Nesjum. Við erum búnir að fá vilyrði frá Ríkisstjórninni um 15 mkr. framlag til byggingarinnar og fáum það greitt þegar húsið er fokhelt segir Kjartan Hreinsson formaður félagsins. Útboð verða send til þeirra sem selja stálgrindar- og límtrésskemmur og áætluð stærð er um 25x60m. Jarðvinnsla fyrir húsið verður boðin út í þessari viku og í nóvember ætti að liggja fyrir hvernig hús verður fyrir valinu og gangi allt samkvæmt áætlun ætti að takast að reisa reiðskemmuna við Stekkhól í vetur. Hestamannafélagið Hornfirðingur varð 70 ára í maí sl.og verður þeirra tímamóta minnst með veglegri afmælisveislu í byrjun vetrar, ekki nánari tímasetning komin. Lesa meira
 
bjorgunarskip_3

Björgunarskipið Ingibjörg kallað út að Jökulsárlóni - 18.09.2006 September

Um klukkan 6 seinnipart laugardags var Björgunarskipið Ingibjörg kallað út til að svipast um eftir manni sem hafði ætlað að fara til Hafnar frá Jökulsárlóni á gúmmíbát með utanborðsmótor. Að sögn Einar Björns Einarssonar staðarhaldara á Jökulsárlóni þá vissi hann af ferðum mannsins og að hann hafi ætlað að fara frá lóninu og sigla til Hafnar og sækja þar félaga sinn, þegar Einar kom til Hafnar fékk hann fregnir af því að maðurinn hefði ekki skilað sér og því ræst hann út Björgunarskipið, enda hafði veður og sjólag versnað frá því að maðurinn lagði af stað frá Jökulsárlóni. Lesa meira
 
Í sláturhúsinu 19.september

Sauðfjárslátrun hefst hjá Norðlenska - 11.09.2006 September

Sauðfjárslátrun hefst í sláturhúsi Norðlenska á Höfn í dag og útlit á að slátrað verði 33-34 þúsund fjár sem er svipaður fjöldi og sl. haust. Slátrað hefur verið 600 lömbum í sláturhúsinu nú síðsumars og t.d voru tvær ferðir farnar eftir lömbum vestur fyrir Hellu. Erfiðlega hefur gengið að fá fólk til starfa í sláturhúsið á haustin en nú hefur Einar Karlsson sláturhússtjóri þann hátt á að byrja á að ráða 25 erlenda starfsmenn til starfa sem er helmingur þess sem til þarf. Það er bara haft samband við erlenda ráðningastofu til að fá þetta fólk og það þarf að gera með góðum fyrirvara því það tekur 6-8 vikur að fá kennitölur fyrir fólkið segir Einar. Við fáum tvo slátrara frá Nýja Sjálandi og hitt starfsfólkið kemur frá norðurlöndunum og Póllandi, svo er vonandi að við fáum nógu marga heimamenn til starfa. Lesa meira
 
Frá Jöklasýningu

Flestir leita upplýsinga um hvar sé hægt að komast í búð - 08.09.2006 September

Góð aðsókn hefur verið að Jöklasýningunni á Höfn í sumar og er fjöldi gesta 7.042 það sem af er árinu en voru 7101 allt árið í fyrra. Í upplýsingamiðstöðin, sem er í húsi Jöklasýningarinnar, hafa komið 10.593 manns á árinu. Guðrún Jónsdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi segir að flestir sem koma til að leita upplýsinga spyrji hvar sé hægt að komast í búð, sem segir okkur að greinilega er þörf á betri merkingum á verslunum hér á Höfn. Einnig er mikið spurt um gististaði og hvar hægt sé að fá gistingu, þá er fólk ekki búið að panta gistingu fyrirfram og heldur að hún sé alltaf til staðar en það er nú öðru nær. Þó fjöldi húsbíla, fellihýsa og tjaldvagna hafi margfaldast ár frá ári minnkar ekki eftirspurn eftir gistiplássi hér um slóðir. Lesa meira
 
Scandia við dýpkunarframkvæmdir

Dýpkunarframkvæmdir ganga vel - 06.09.2006 September

Dýpkunarskipið Scandia er þessa dagana að dæla efni úr höfninni, skipið er frá Gáma- og tækjaleigu Austurlands en fyrirtækið var lægst á sínum tíma í útboði sem fram fór fyrr á þessu ári. Á skipinu er fimm manna áhöfn, þrír pólverjar og tveir danir. Dælt er í stóran safnpoka og síðan hefur skipið losað við Mikleyjarál og nú í gegnum lögn sem liggur út í Miðós eins og var gert með dýpkunarskipinu Soffíu. Scandia hafði áður í byrjun ágúst gert tilraun með dælingu á efni innan hafnarinnar og gekk hún vel. Þetta sama skip var einnig við tilraunadælingar á Grynnslunum utan við Ósinn á síðasta ári. Reiknað var með í útboðinu á sínum tíma að dæla um 45.000 rúmmetrum vegna stofndýpkunar til að ná viðunandi dýpi innan hafnarinnar en nú er reiknað er með að dælt verði upp 70 þúsund rúmmetrum í þessari skorpu en það samsvarar að Íþróttahús Heppuskóla verði fyllt 15 sinnum. Lesa meira
 
Laufey Helgadóttir (@Smyrlabjörg)

Besta árið í ferðaþjónustunni á Smyrlabjörgum - 06.09.2006 September

Hér er allt á fullu í ferðaþjónustunni ennþá og mikið að gera fram að næstu helgi og ég á von á að svo verði út september sagði Laufey Helgadóttir á Smyrlabjörgum þegar hún var spurð um hvernig ferðaþjónustan hafi gengið í sumar. Góðar horfur eru á að þetta ferðaþjónustuár verði betra hjá okkur en sl. ár, þó komu færri gestir í maí, júní var betri, allt fullt í júlí og ágúst svakalega góður og gott þessa daga sem af eru sept. Þetta hefur verið afskaplega gott sumar hjá ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu og allir eru ánægðir, veðrátta hefur verið góð í sumar og frábær það sem af er haustinu. Þó gistirúmum fjölgi á hverju ári segir Laufey enga hættu á offramboði á gistingu því ferðamönnum fjölgar meira en sem þeirri aukningu nemur. Lesa meira
 
Göngum til góðs

Gengið til Góðs á laugardag - 05.09.2006 September

Deildir Rauða krossins um allt land eru nú í óða önn að undirbúa söfnun Rauða krossins, Göngum til góðs, til hjálpar börnum í Malaví, Suður-Afríku og Mósambík sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Lögð er sérstök áhersla á aðstoð við börn sem misst hafa foreldra sína og styðja við bakið á foreldrum sem eru veikir svo þeirra njóti við sem lengst. Hver deild skipuleggur starfið með sínum hætti, enda aðstæður og hefðir mismunandi eftir byggðarlögum og landshlutum. Þeir sem vilja gerast sjálfboðaliðar hér í Sveitarfélaginu eru boðnir velkomnir í hús Rauða krossins að Hafnarbraut en þar verður opið hús þennan dag frá kl. 10:30 - 13:30 á laugardaginn. Lesa meira
 
Busavíxla í FAS 2006

Ekki var annað að sjá en nýliðarnir stæðu sig með prýði - 01.09.2006 September

Nemendur FAS á Höfn settu svip á miðbæ Hafnar í morgun þegar busavígsla fyrstu bekkinga fór fram. Nemendur söfnuðust saman í verslunarmiðstöðinni Miðbæ, málaðir og klæddir svo sem tilheyrir busavígslu og eftir að hafa skemmt sér þar um stund var farið út þar sem margskonar þrautir biðu fyrstu bekkinga og sáu eldri bekkingar um að þar væru engin undanbrögð. Ekki var annað að sjá en nýliðarnir stæðu sig með prýði og eru þar með boðnir velkomnir í hóp fullorðinna nemenda FAS. Hjördís Skírnisdóttir kennari í FAS segir kennara hafa annan hátt á að bjóða nemendur velkomna í skólann, það geri þeir með því að bjóða öllum nemendum upp á grillaða hamborgara eftir skólasetningu og umsjónarfund. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica