Námsferð til Þýskalands
Snemma í sumar héldum við, ásamt 12 þýskunemendum úr VA og ME, til Trier í Þýskalandi. Þetta var samstarfsverkefni milli framhaldsskólanna á Austurlandi, þar sem að við fórum og heimsóttum skóla í Þýskalandi og kynntumst menningunni og málinu aðeins betur. Við flugum út frá Egilsstöðum þann 15.maí, en þetta var langt og strangt ferðalag, þar sem að við flugum fyrst til Kaupmannahafnar og síðan til London áður en við lentum á Frankfurt Hahn. Ævintýrin byrjuðu strax þar sem að allir fengu ekki farangurinn sinn þegar við lentum í London. Þegar við vorum lent í Frankfurt tóku Þjóðverjarnir, sem við bjuggum hjá næstu tvær vikurnar, á móti okkur. Eftir klukkutíma keyrslu vorum við loksins komin á leiðarenda eftir 17 tíma ferðalag. Trier er elsti bærinn í Þýskalandi og hefur að geyma byggingar frá tímum rómverja, og var miklum tíma eytt í að skoða svæðið.
Daginn eftir komuna vorum við rifin á fætur kl. 6 til að mæta í skólann sem byrjaði kl. 8. Þá hófst löng skoðunarferð um bæinn, þar sem Porta Nigra var skoðað, Dómkirkjan, Basilikan, sem er eina mótmælendakirkjan í Trier, og fæðingarstaður Karl Marx var einnig skoðaður. Þennan dag var okkur boðið í heimsókn til borgarstjórans í Trier, þar sem að við vorum boðin velkomin og skiptumst á gjöfum. Við gerðum heilmikið annað á þessum stutta tíma. Við löbbuðum niður hæsta fjall vestan Rínar, sem var nú reyndar ekki hærra 800 metrar, fórum í siglingu á Rín, fórum til Kölnar, skoðuðum vínekru sem endaði reyndar með ferð uppá spítala, svo við gleymum nú heldur ekki öllum verslunarferðunum. Markmiðið með þessari ferð var einnig að kynna Ísland og vorum við með kynningu á landinu í miðborg Trier einn daginn, þar sem að við tókum að okkur að kynna Austur ? Skaftafellssýslu. Strákarnir í hópnum sungu íslensk lög og spiluðu á harmonikku og gítar.
Eftir 12 ánægjulega rigningardaga var komið að því að halda heim, og sem betur fer flugum við beint til Keflavíkur í það skiptið. Þessi ferð var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík og komum við til baka reynslunni ríkari.
Þessu samstarfsverkefni er þó ekki lokið, því að þann 6. september koma Þjóðverjarnir síðan í heimsókn til okkar, þó svo að þeirra heimsókn verði með öðru sniði. Þeir munu vera á landinu í tvær vikur og ferðast hringinn í kringum landið og skoða helstu náttúrugersemar sem landið hefur að geyma. Þeir munu stoppa í einn dag hér á Hornafirði áður en þeir halda áfram austur, þar sem stoppað verður í nokkra daga.
Við viljum þakka Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir styrkinn sem það veitti.Einnig lögðu nokkrir einstaklingar og fyrirtæki okkur lið með því að gefa okkur flottar myndir sem hægt var að nota í kynningunni og viljum nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur við að gera þessa ferð mögulega.
- Denis Cardaklija og Guðrún Fema





Skrifa athugasemd