Ágúst
Útskrifuðust sem ferðamálafræðingar
Útskrifuðust sem ferðamálafræðingar
Guðrún Guðmundsdóttir og Guðrún Jónsdóttir á Jöklasýningu á Höfn.

30.08.2006 Ágúst

Útskrifuðust sem ferðamálafræðingar

Guðrún Jónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir útskrifuðust, þann 25 ágúst sem ferðamálafræðingar með diploma, landavarðar og staðarvarðarréttindi frá Háskólanum á Hólum. Námið er mjög fjölbreytt, þar er m.a. komið inn á landbúnaðar- og menningartengdaferðaþjónustu. Tekið er á umhverfismálum, gestamóttöku, afþreyingu og útivist, bókhaldi og rekstri o.fl. Markmiðið er að veita nemendum hagnýtt og vandað starfsnám á háskólastigi og stuðla að eflingu ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar á landsbyggðinni. Í dag eru þrír nemendur sem stunda þegar nám frá Hornafirði við Háskólann á Hólum, og útskrifast þeir næsta sumar. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur þá er námið mjög skemmtilegt og gefandi enda svæðið hér í Ríki Vatnajökuls mjög spennandi til að vinna að ferðamálum.

Guðrún Guðmundsdóttir starfar við uppbyggingu á ferðaþjónustu í Hólmi á Mýrum. Guðrún Jónsdóttir gegnir starfi Upplýsinga- og menningarfulltrúa hér í sveitarfélaginu og starfar einnig á Jöklasýningunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica