Ágúst
Aðalfundur félags ungra sjálfstæðismanna
Aðalfundur Skaftfellings, félags ungra sjálfstæðismanna, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld þriðjudaginn 29. águst. Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf ásamt kosningu fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs. Ungt fólk hefur sett mikinn svip á starfsemi sjálfstæðismanna í héraðinu síðustu ár og hefur framlag þeirra í kosningabáráttunni verið mikilvægt. Ljóst er að einhver endurnýjum verður á stjórn félagsins og þess vegna æskilegt að þeir sem áhuga hafi á að taka þátt í stjórnarstörfum láti stjórnarmenn vita af sér og mæti á fundinn.
Fundurinn hefst stundvíslega kl.20





Skrifa athugasemd