Ágúst
STH_Jarðvegsvinna
STH_Jarðvegsvinna
Jarðvegsvinna við nýja fyristigeymslu

29.08.2006 Ágúst

Ný frystigeymsla

Skinney-Þinganes hefur undirritað samning við Íslenska aðalverktaka um byggingu 4000 tonna frystigeymslu. Vinna við grunn fyrir bygginguna er hafin en áætluð verklok eru 1. febrúar 2007. Að sögn Gunnars Ásgeirssonar hjá Skinney-Þinganesi var ákveðið að loka ekki í fyrirtækinu í ágúst vegna sumarleyfa fastráðna starfsfólksins, eins og gert hefur verið, heldur gefa unglingum kost á vinnu meðan þeir fastráðnu færu í frí. Þetta hefur gefist vel og þessir unglingar hafa staðið sig með prýði og eru góðir starfsmenn segir Gunnar.

Skinney-Þinganes býður starfsmönnum sínum í fimm daga ferð til Tallin í Eistlandi, flogið verður frá Egilsstöðum til Tallin á morgun og komið til baka um miðnætti 4.sept. Í þessa ferð sem er í tilefni 60 ára afmælis fyrirtækisins þann 11. apríl sl. fara 300 manns í þrem flugvélum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica