Mikið af bláberjum og krækiberjum
Eftir því sem fregnað hefur verið frá ýmsum stöðum sunnan og austan Hafnar er berjaspretta mjög góð. Heimildarmaður vefsins á Stöðvarfirði sagðist aldrei hafa séð eins mikið af krækiberjum og er núna og eins væri mjög mikið af bláberjum og aðalbláberjum en þau væru varla nógu þroskuð ennþá, fín eftir nokkra daga. Í Suðursveit er berjaspretta góð og þar hefur krækiberjalyng víða breitt sig út um sanda og aura einnig á Mýrum og í Lóni þar sem er víða mikið af berjum. Magnús Lárusson sem er manna fróðastur um berjasprettu, er búinn að týna mikið af berjum og segir víða mikið bæði af bláberjum og krækiberjum hér í sýslunni.
Síðasta haust var víða góð berjaspretta en frost kom snemma og berin eyðilögðust og margir misstu af að ná sér í vetrar eða ársforða af þessari hollu og ljúffengu fæðu. Landeigandi, sem hafði samband við vefinn, vill benda fólki á að æskilegt sé að fólk hafi samband við landeigendur um berjatínslu.





Skrifa athugasemd