Gömlu röntgentækin tekin niður til að rýma fyrir nýju
Nú hillir undir að röntgenmyndatökumál Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands séu að komast á lokastig þar sem tækjabúnaður er tilbúinn til afhendingar. Nú er verið að taka niður og fjarlægja gömlu vélarnar og framköllunartækin einnig verður veggur inn í framköllunarherbergið fjarlægður þar sem ekki er lengur þörf á slíku plássi segir Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSSA. Þegar plássið verður tilbúið koma starfsmenn frá Raferninum í Reykjavík og setja tækin upp einnig kemur leiðbeinandi um notkun tækjanna frá framleiðanda þeirra á Ítalíu. Áætlað er að þetta ferli taki þrjár vikur segir Guðrún Júlía og á meðan getum við ekki tekið röntgenmyndir og munum því senda fólk til myndatöku ef þarf.
Röntgenmyndavélin og sá búnaður sem henni fylgir er allt keypt fyrir söfnunarfé frá 18 einstaklingum og 13 félagasamtökum og fyrirtækjum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fyrsta innborgun í söfnunina var 12. des. 2005. Margar höfðinglegar gjafir hafa borist frá einstaklingum en allt skiptir þetta okkur svo miklu máli og hefur gert okkur kleift að kaupa þennan búnað sem er okkur sem hér búum mikið öryggistæki.





Skrifa athugasemd