Þegar komið var upp á Háás blasti grösugur og kjarri vaxinn Hofsdalurinn við
Föstudaginn 11. ágúst fór Ferðafélagið í göngu og jeppaferð inn Múladal í Álftafirði og kom til baka fram Hofsdal. Farið var á 3 jeppum alls 23 manna hópur. Þegar komið var langleiðina inn Múladal ókum við fram á tvo erlenda ferðamenn sem höfðu sett bílinn sinn á bólakaf í drullupytti. Þeir urðu mjög glaðir að sjá okkur, því að þeir voru búnir að vera þarna fastir í tæpan sólarhring. Jeppamennirnir í hópnum urðu líka voða glaðir, því að nú fengu þeir tækifæri til að sýna getu jeppanna sinna, en því miður þá þurfti ekki nema einn til að draga þann fasta upp. Þegar komið var inn í botn dalsins lögðu 18 manns af stað gangandi yfir í Hofsdal undir öruggri fararstjórn Jóns Bragasonar sem þarna var á heimavelli, enda alltaf kenndur við Hof. Bjart var mestan hluta ferðarinnar og útsýni gott til fjalla og jökla. Mikið var af stórum hreindýrahjörðum í Hofsdal. Eftir 7 tíma göngu hittum við jeppamennina við enda vegslóðans í Hofsdal. Þegar komið var fram dalinn buðu hjónin á Rannveigarstöðum öllum hópnum í saltkjöt og baunir.
Næsta ferð verður Laugardaginn 26. ágúst, en þá verður gengið á Grákinn í Stafafellsfjöllum. Sú ganga tekur ca 3 - 4 tíma.




Skrifa athugasemd