Ágúst
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2006 (ebe)
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2006 (ebe)
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2006 (ebe)
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

15.08.2006 Ágúst

Þetta var hreint út sagt alveg glæsilegt

Flugeldasýningin við Jökulsárlón sl. laugardag heppnaðist eins og best varð á kosið. Fjöldi fólks mætti á staðinn og naut stórfenglegrar sýningar í yndislegu veðri. Þetta var hreint út sagt alveg glæsilegt sagði Grétar Þorkelsson lögreglumaður og það er nú svo með hann Einar Björn hann á erfitt með að hætta svo sýningin varð enn stórfenglegri og hann og hans fólk á heiður skilið fyrir framtakið. Kertaljós vörðuðu veginn frá þjóðveginum að þjónustuskálanum og flugeldum var skotið upp víðsvegar um lónið og skothvellirnir bergmáluðu tröllslega svo hávaðinn var yfirþyrmandi en hápunktur sýningarinnar var ljósafossinn af Jökulsárbrúnni sem var alveg ótrúlega flottur.

Margir útlendingar voru á sýningunni sem þeim fannst alveg einstök og hreinn bónus á það sem þeir hafa notið og séð hér. Flugeldasýningin aðra helgina í ágúst er orðinn fastur liður hjá Einari Birni og starfsfólki hans og ennfremur nýtur hann aðstoðar björgunarsveitar Hornafjarðar. Allur ágóði af sýningunni rennur til Björgunarsveitarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica