35 ára afmæli og vígsla á nýjum Silfurnesvelli
Undanfarin ár hafa staðið yfir framkvæmdir á Silfurnesvelli á Hornafirði sem fela í sér breytingu og stækkun vallarins. Í ágúst 2001 var skrifað undir samning við Sveitafélagið Hornafjörð það sem m.a. er kveðið á um að sveitarfélagið styrki framkvæmdina með 20 milljón króna framlagi sem greiðist á tíu árum. Í framhaldinu var gengið frá fjármögnun framkvæmdanna m.a. með samningi við Landsbanka Íslands.Skipuð var framkvæmdanefnd úr hópi klúbbfélaga vegna verksins og í henni sitja Sigurður Grétar Ragnarsson, Hákon Gunnarsson, Ari Jónsson og Valur Sveinsson. Samið var við golfvallarhönnuðinn Edvin Rögnvaldsson um hönnun vallarins. Ýmsir verktakar komu að verkinu og má nefna Ólaf Halldórsson verktaka og Gróðrarstöðina í Dilksnesi. Klúbbfélagar lögðu einnig sitt af mörkum í uppbyggingunni með sjálfboðavinnu.
Nú sér fyrir endann á framkvæmdinni og til að fagna þessum tímamótum og 35 ára afmæli klúbbsins verður Afmælis og vígslumót Golfklúbbs Hornafjarðar haldið á Silfurnesvelli laugardaginn 19. ágúst n.k...
Mótið hefst kl. 08:00 og er punktamót. Keppt verður í þremur flokkum, kvenna-, karla-, og unglingaflokki og er hámarksforgjöf kvenna og unglinga 28 og karla.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki og fyrir besta skor dagsins, einnig verða nándarverðlaun og myndarlegar teiggjafir.
Kaffiveitingar verða í golfskálanum meðan á móti stendur og eru gamlir félagar,verktakar, styrktaraðilar og aðrir velunnarar klúbbsins sérstaklega boðnir velkomnir.
Brott fluttir kylfingar eru hvattir til að mæta og taka þátt í mótinu.
Skráningu lýkur kl. 20:00 föstudaginn 18. ágúst og fer fram á golf.is og hjá mótsstjóra í síma 8663051.
Um kvöldið verður grillveisla í golfskála á kostnaðarverði.
- Stjórn GHH.





Skrifa athugasemd