Ágúst
Tallin
Tallin
Tallin

10.08.2006 Ágúst

40 sæti laus til Tallinn í Eistlandi í beinu flugi frá Egilsstöðum

Miðaldaborgin frá 11. öld Tallinn í Eistlandi

Um 300 starfsmenn Skinney-Þinganes og makar þeirra halda til Tallin í Eistlandi frá Egilsstöðum í lok þessa mánaðar og munu þeir dvelja í borginni í 5 daga (31. ágúst til 4. september). Um er að ræða 70 ára afmælisferð Skinney-Þinganess og því hefur ferðaskrifstofan Trans-Atlantic sem sér um ferðina gert hana veglegri en aðrar ferðir þangað af því tilefni. Gamli bærinn í Tallinn er frá 11. öld og er borgin talin ein af fegurstu borgum Evrópu. Tallinn er á minjalista UNESCO sem ein best varðveitta miðaldaborg Evrópu. Ferðir Trans-Atlantic til Tallinn hafa verið mjög vinsælar hjá Íslendingum undanfarið ár og er þar að finna margt sem heillar ferðalanginn svo sem kastala, hallir, þröngar steini lagðar götur, skemmtistaði, verslanir og veitingahús. Veðurfar í borginni á þessum árstíma er mjög gott og má búast við yfir 20 stiga hita.

Að sögn Ómars R Banine hjá Trans-Atlantic þá eru 40 sæti laus í ferðina og geta þeir Hornfirðingar sem hafa áhuga á að komast með haft samband við ferðaskrifstofuna í síma 588 8900 og skoðað heimasíðu ferðskrifstofunnar (www.transatlantic.is). til að fá frekari upplýsingar um borgina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica